Besti árangur Kia hjá J.D. Power Finnur Thorlacius skrifar 22. júní 2015 15:22 Kia Soul EV.
Kia Motors hefur náð besta árangri í sögu fyrirtækisins í hinni virtu gæðakönnun J.D. Power. Kia er í öðru sæti yfir 33 bílaframleiðendur í gæðakönnuninni og hækkaði um fjögur sæti frá 2014 sem þá var besti árangur Kia frá upphafi. Tveir af söluhæstu bílum Kia, Sorento og Soul, skoruðu hæst í sínum flokkum og Rio, Optima, Sportage, Cadenza og Sedona voru allir í efstu þremur sætunum í sínum flokkum. J.D. Power gæðakönnunin byggir ekki eingöngu á gögnum um bilanir í bílum heldur nær könnunin einnig til tæknibúnaðar og hvernig umgengni við hann er. ,,Við teljum að gæðakönnun J.D. Power sýni svo ekki verði um villst að Kia smíðar heimsklassa bíla. Niðurstöðurnar úr gæðakönnuninni eru sérstakelga ánægjulegar því þær endurspegla raddir viðskiptavina," segir Michael Sprague, einn af framkvæmdastjórum Kia Motors í Bandaríkjunum. ,,Vöxtur Kia er ein besta sagan um árangur fyrirtækis innan bílaiðnaðarins. Þessi árangur byggist á góðri og fagmannlegri vinnu þúsunda starfsmanna Kia um heim allan sem og langtíma áætlun um að einblína á að auka gæði og áreiðanleika bíla," segir hann.
Mest lesið Kjarasamningur kennara í höfn Innlent Engin röð á Læknavaktinni Innlent Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Innlent Samkomulag milli Úkraínu og Bandaríkjanna í höfn Erlent Segir lífeyrisgreiðslur skertar á fölskum forsendum Innlent Reykjavík ekki ljót borg Innlent Ókunnugir og fyrrverandi meðal þeirra sem gætu verið að fylgjast með Innlent Fyrsta skrefið en heljarinnar barátta fram undan Innlent Ætla sjálf að velja blaðamenn í Hvíta húsið Erlent „Ef ég segði Hitler skepnu væri ég þá að blammera alla þýsku þjóðina?“ Innlent