Sjónvarspkokkurinn Eva Laufey, heldur úti girnilegu matarbloggi þar sem hægt er að finna ógrynni af frábærum uppskriftum. Hér gefur Eva Laufey okkur uppskrift af einföldum pizzasnúðum.
Pizzasnúðar með skinku og pepperoni
Þessi uppskrift er stór, ég skipti henni í tvennt bjó til snúða og skinkuhorn. Helmingur af þessari uppskrift gaf mér semsagt 20 meðalstóra pizzasnúða.
900 g Kornax hveiti (í rauðu pökkunum)
40 g sykur
½ tsk salt
100 g smjör, brætt
500 ml mjólk
1 pakki þurrger (12 g)
Fylling:
1 bréf skinka
1 bréf pepperoni
pizzasósa, magn eftir smekk
rifinn mozzarella ostur, magn eftir smekk
oreganó krydd
Til að pensla yfir:
1 egg
2 msk mjólk
rifinn ostur
oreganó krydd
Aðferð:
Hitið mjólk í potti, mjólkin á að vera volg. Vekjið gerið í mjólkinni, en það tekur um það bil fimm mínútur. Um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerblandan tilbúin. Bræðið smjör. Blandið öllu saman í skál og hnoðið deigið mjög vel, ég leyfi hnoðaranum á hrærivélinni minni að sjá um verkið en þá tekur það um bil bil fimm til sex mínútur.
Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að lyfta sér í rúmlega klukkustund eða þar til það hefur tvöfaldast og jafnvel þrefaldað stærð sína.
Hitið ofninn í 180°C.
Skiptið deiginu í tvennt, stráið hveiti á borðflöt og hnoðið létt.
Fletjið deigið út með kökukefli. Smyrjið deigið með pizzasósu, skerið niður skinku og pepperoni og leggið yfir. Sáldrið rifnum mozzarella osti yfir og kryddið til með oreganó. Rúllið deiginu saman og skerið hverja rúllu í 18 – 20 bita.
Leggið bitana beint á pappírsklædda ofnplötu eða í bollakökuform eins og ég gerði.
Penslið snúðana með eggjablöndunni og sáldri rifnum mozzarella osti yfir og kryddið gjarnan með oreganó.
Bakið snúðana við 180°C í 10 – 12 mínútur eða þar til snúðarnir eru gullinbrúnir.
