Berglind Guðmundsdóttir hefur slegið í gegn með matarbloggi sínu Gulur, rauður, grænn og salt. Hún gefur lesendum Matarvísis hér uppskrift af girnilegu kjúklingapasta.
Kjúklingapasta með mozzarella og sólþurrkuðum tómötum
3 hvítlauksrif, pressuð
1 krukka sólþurrkaðir tómatar
500 g kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
salt
paprikuduft
240 ml matreiðslurjómi
110 g rifinn mozzarellaostur
250 g pasta, t.d. penne pasta
1 msk þurrkað basil
¼ tsk rauðar piparflögur
sjávarsalt
Eldið pastað skv. leiðbeiningum og þegar það er tilbúið geymið 120-ml af pastavatninu þar til síðar. Takið sólþurrkuðu tómatana úr olíunni og steikið á pönnu ásamt hvítlauknum í um 1 mínútu. Takið af pönnunni. Skerið kjúklingabringurnar í litla bita kryddið með paprikukryddi og salti og steikið á pönnunni. Skerið sólþurrkuðu tómatana í litla bita og bætið þeim saman við kjúklinginn.
Setjið rjómann og mozzarellaostinn saman við og hitið að suðu. Lækkið þá hitann og hrærið stöðugt í eða þar til osturinn hefur bráðnað. Þynnið sósuna með því að bæta pastavatninu saman við.
Bætið pasta út á pönnunna og kryddið með basil, chilíflögum og saltið að eigin smekk. Berið fram með salati og góðu brauði.