
Forstjóri Útlendingastofnunar: "Þetta voru mistök hjá okkur“
Fréttablaðið greindi frá því í dag að Útlendingastofnun hefði ekki sótt um skólavist fyrir börn albanskra hælisleitenda sem dvalið hafa á Íslandi frá því í júní. Systkinin eru þrjú og öll á grunnskólaladri. Fjórtán önnur börn í sömu stöðu ganga hvorki í skóla hér á landi né hafa fengið viðeigandi menntun að öðru leyti. Umboðsmaður barna hefur lýst yfir þungum áhyggjum vegna málsins og en öll börn eiga rétt á skólavist þótt þau séu ekki komin með kennitölu.
Systurnar Janie og Laura eru 13 og 15 ára og litli bróðir þeirra Petrit 8 ára.
„Við erum bara búnin að vera heima að gera sömu hlutina dag eftir dag. Það getur verið svolítið þreytandi,“ segja þau.
Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri Barnaheilla- Save the Children á Íslandi, segir algjörlega óásættanlegt að börnin séu utan skóla. Þannig sé þeim mismunað.
„Það er alveg klárt að það er verið að brjóta á réttindum þessara barna. Öll börn eiga rétt á að ganga í skóla. Það á alltaf að líta á öll börn fyrst og fremst sem börn. Það skiptir ekki máli hvort þau eru hælisleitendur eða ríksiborgarar í landinu,“ segir hún.
Í kjölfar umfjöllunar Fréttablaðsins um málið í dag var albönsku systkinunum boðin skólavist og fara þau í skólann strax á mánudag. Þá er unnið að því að koma tveimur börnum til viðbótar í skóla í Reykjavík og tólf í Hafnarfirði.
Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, segir ástæðu þess að ekki var sótt um skólavist fyrir börnin vera mikið álag og ófyrirséður fjöldi hælisleitenda og flóttamanna sem hefur komið til landsins undanfarið.
„Þetta eru mistök hjá okkur. Við brugðumst ekki nógu fljótt við. Á mánudagin hefst skólaganga þessara barna, og í framhaldinu af því munum við funda með hagsmunaaðilum og útbúa verkferil sem gerir það að verkum að svona aðstæður komi ekki upp aftur,“ segir Kristín.
Tengdar fréttir

Unnið að því að koma öllum börnunum í grunnskóla
Útlendingastofnun hefur í dag sótt um skólavist fyrir fimm börn í Reykjavík og vinnur nú að því að koma tólf börnum í Hafnarfirði í skóla.

Á annan tug barna bíður þess að komast í skóla
Umboðsmaður barna lítur alvarlegum augum á vinnubrögð Útlendingastofnunar, sem hefur látið hjá líða að sækja um skólavist fyrir á annan tug barna hælisleitenda hér á landi.

Fréttir Stöðvar 2 í kvöld: Albönsku systkinin hlakka til að byrja í skólanum
Albönsku systkinin hefja skólagöngu á mánudaginn og verða þau heimsótt í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Öll börnin fengið inngöngu í skóla: „Hrökk upp við þessar fréttir“
Nú hafa öll börnin þrjú; Laura, Janie og Petrit fengið inngöngu í skóla. Systkinin hafa stöðu hælisleitenda hér á landi, en hafa verið búsett hér á landi frá því í júní.

Fjölmargir vilja rétta albönsku fjölskyldunni hjálparhönd
Íbúð fjölskyldunnar er nánast tóm. Ákveðnar reglur gilda þó um gjafir til hælisleitenda.

Börn hælisleitenda fá ekki skólavist
Þau Laura fimmtán ára, Janie þrettán ára og Petrit níu ára komu til Íslands í byrjun júní. Þau spyrja foreldra sína daglega hvenær þau fái að fara í skóla. Útlendingastofnun sótti ekki um skólavist fyrir systkinin þrátt fyrir ítrekaðar áminningar foreldra barnanna, lögfræðinga og umboðsmanns barna.