MAX1 Bílavaktin afhendir Krabbameinsfélagi Íslands 1.500.000 kr. 4. desember 2015 15:24 Sigurjón Árni Ólafsson, framkvæmdastjóri MAX1 Bílavaktinnar afhendir Þresti Árna Gunnarssyni, fjármála- og starfsmannastjóri Krabbameinsfélags Íslands ávísunina.
Krabbameinsfélag Íslands fékk í dag styrk að upphæð 1.500.000 kr. frá MAX1 Bílavaktinni sem er söluaðili Nokian tires á Íslandi.Hluti söluágóða Nokian dekkja sem seld voru hjá MAX1 í október og nóvember rann til Bleiku slaufunnar, árvekniátaks Krabbameinsfélags Íslands í baráttunni gegn krabbameini í konum. „Það er sérlega ánægjulegt að geta lagt til samfélagsins á þennan hátt og vekja um leið athygli á mjög svo þörfu málefni. Áhersla Bleiku slaufunnar í ár var ristilkrabbamein hjá konum og þar rétt eins og hjá körlum er mikilvægt að hefja leit sem fyrst. Starfsmenn sem og viðskiptavinir MAX1 hafa tekið mjög vel í verkefnið og líst ánægju sinni með samstarfið en þetta er annað árið sem við styrkjum Bleiku slaufuna með þessum hætti.“ segir Sigurjón Árni Ólafsson, framkvæmdarstjóri MAX1 Bílavaktarinnar. MAX1 Bílavaktin býður upp á hraðþjónustu fyrir allar tegundir bíla á fjórum verkstæðum á höfuðborgarsvæðinu. Þegar kemur að því að velja dekk er mikilvægt að horfa í gæðin ekki síður en verðið. Því dekkin sem sett eru undir bílinn skipta miklu máli upp á öryggi, eyðslu og mengun. Gæði dekkja eru mismunandi, m.a. hvað varðar bremsuhæfni, eiginleika til aksturs í bleytu, snjó og hálku og ekki síst sparneytni og mengun. Finnsku Nokian gæðadekkin sem fást hjá MAX1 Bílavaktinni voru í fyrsta sæti í flokki negldra og ónegldra vetrardekkja í dekkjakönnun FÍB.
Mest lesið Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Erlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent „Ekkert nema gott að segja fyrir gróðurinn og sálarlíf landsmanna“ Veður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Innlent Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Innlent