Fréttablaðið skoðar þá menn sem skara fram úr í liðum andstæðinga Íslands.
Nikola Karabatic - Frakkland
30 ára
1,96 m
102 kg
234 landsleikir - 964 mörk
Karabatic er sá sem öllu stýrir í franska landsliðinu. Hann stendur vaktina í miðri vörn Frakka ásamt bróður sínum Luka, og stjórnar sóknarleiknum af mikilli festu og er snjallari en flestir í að stjórna hraða leiksins.
Eftir erfiða tíma í kjölfar veðmálahneykslisins, sem hann var flæktur í, er Karabatic kominn á fulla ferð að nýju og hefur sjaldan eða aldrei verið betri eins og sást á EM í Danmörku fyrir ári, þar sem hann leiddi Frakka til sigurs. Lék sinn fyrsta landsleik í nóvember 2002 og hefur síðan þá verið lykilmaður í sigursælu liði Frakklands.

32 ára
1,99 m
103 kg
212 landsleikir - 763 mörk
Andersson ákvað að snúa aftur í sænska landsliðið eftir nokkuð langa fjarveru og tekur nú þátt á sínu fyrsta stórmóti síðan Svíar fengu silfur á Ólympíuleikunum í London 2012.
Það eru einu verðlaunin sem Andersson hefur unnið með sænska landsliðinu á stórmóti fyrir utan gull á HM 2003 þegar Olsson, Wislander og félagar voru enn í fullu fjöri.
Þessi öfluga örvhenta skytta, sem leikur undir stjórn Arons Kristjánssonar hjá KIF Kolding, þarf taka að sér leiðtogahlutverk í sænska liðinu, sem varð fyrir miklu áfalli þegar Kim Ekdahl Du Rietz lagði landsliðsskóna á hilluna, aðeins 25 ára gamall.

32 ára
2,01 m
105 kg
148 landsleikir - 816 mörk
Jícha hefur verið einn besti leikmaður heims á undanförnum árum. Þessi 32 ára gamla rétthenta skytta hefur verið lykilmaður hjá Kiel síðan hann gekk í raðir liðsins árið 2007.
Jícha er góður á báðum endum vallarins; er mikill skorari og er auk þess gríðarlega öflugur sem fremsti maður í framliggjandi vörn.
Hann hefur sankað að sér einstaklingsverðlaunum á síðustu árum, en hann var m.a. valinn besti handboltamaður í heimi árið 2010.
Hann hefur hins vegar ekki notið sömu velgengni með tékkneska landsliðinu, en stuðningsmenn Tékka vonast til að breyting verði þar á í Katar.

40 ára
1,95 m
107 kg
350 landsleikir
Bakir er einn af fjölmögum reynsluboltum í liði Egyptalands, en hann hefur varið mark landsliðsins lengur en elstu menn muna. Bakir, sem spilar með Sporting í heimalandinu eins og nokkrir félagar hans í landsliðinu, hefur t.a.m. tekið þátt á fernum Ólympíuleikum og var í lykilhlutverki þegar Egyptaland var með gríðarlega öflugt lið um aldamótin.
Egypska liðið lenti í 7. sæti á HM á heimavelli 1999 og tveimur árum síðar í Frakklandi endaði liðið í 4. sæti. Ólíklegt verður að teljast að Egyptar nái að endurtaka þann leik, en með Bakir í stuði í markinu gæti liðið komist í 16-liða úrslit.

25 ára
1,94 m
96 kg
58 landsleikir
89 mörk
Berkous er algjör lykilmaður hjá alsírska liðinu sem hefur undirbúið sig af kappi fyrir HM og stefnir hátt í Katar.
Alsír tryggði sér þátttökurétt á HM með því að vinna Afríkukeppnina 2014 á heimavelli, eftir 18 ára bið. Berkous tók við stöðu landsliðsfyrirliða af Hicem Boudrali eftir Afríkukeppnina og þessari öflugu skyttu er ætlað að leiða alsírska liðið upp úr riðlinum og í 16-liða úrslit í Katar.
Berkous spilar með GS Pétroliers í heimalandinu en það kæmi ekki á óvart að hann fengi samning hjá liði í Evrópu eftir góða frammistöðu á HM.