Í Hagkaupsbókinni Léttir réttir er að finna mikið af girnilegum uppskriftum fyrir sælkera en líka þá sem vilja næringarríka og holla máltíð þar sem búið er að reikna út helstu næringargildi uppskriftarinnar.
Austurlensk kjúklingasúpa með núðlum er tilvalin í kuldanum og skammdeginu.
Austurlensk núðlusúpa með kjúkling
2 msk. ólífuolía
2 msk. engifer
2 stk. hvítlauksrif, pressuð
½ rautt chili-aldin, saxað
100 g gulrætur, saxaðar
500 g kjúklingalundir, skornar í bita
1½ msk. púðursykur
1½ kjúklingakraftsteningur
3 msk. sojasósa
4 msk. fiskisósa (fish sauce)
2 msk. sesamolía
2 l vatn
150 g spergilkál, skorið í bita
1 dós smámaís, skornir til helminga
300 g hrísgrjónanúðlur
Hitið ólífuolíuna í potti og léttsteikið engifer og hvítlauk. Bætið chili-aldini, kjúklingi og gulrótum út í og steikið áfram í fáeinar mínútur. Blandið fiskisósu, sojasósu, sesamolíu, púðursykri og kjúklingakrafti út í, hellið vatninu yfir og látið malla í 15–20 mínútur. Bætið spergilkáli, smámaís og núðlum út í, látið malla áfram í 5 mínútur og þá er rétturinn tilbúinn.
NÆRINGARGILDI
Kcal: 537 / 27%
Prótein: 20,9 g / 42%
Fita: 30 g / 47%
Kolvetni: 45 g / 15%
Trefjar:4 g / 16%
A-vítamín: 4.118 IU / 82%
C-vítamín: 21,2 mg / 35%
Leiðbeinandi dagsskammtur (LDS) er miðaður við 2.000 kcal (hitaeininga) orkuþörf.