Tónskáld og morðingi geldings Jónas Sen skrifar 16. júlí 2015 13:30 Sumartónleikar í Skálholti fara fram í einstöku umhverfi og eru skemmtilegur hluti af íslenska tónlistarárinu. Visir/Vilhelm
Tónlist Sumartónleikar í Skálholti Elfa Rún Kristinsdóttir og Elina Albach fluttu blandaða dagskrá á Sumartónleikum í Skálholti. Laugardaginn 11. júlí. Sagt er að tónskáldið G. A. Pandolfi Mealli hafi drepið gelding. Geldingar voru fyrirferðarmiklir í tónlistarlífinu á sautjándu öldinni. Þá þótti fínt að vera góður söngvari með engin eistu. Til fróðleiks má geta að örlítil prósenta karlmanna verður aldrei kynþroska. Þeir eru kallaðir náttúrulegir geldingar. Einn slíkur er söngvari sem heitir Radu Marian. Frábært sýnishorn með söng hans má finna á YouTube undir heitinu „Radu Marian, Händel, Lascia Ch'io Pianga“. Röddin er furðuleg, hún er sópran, en samt allt öðruvísi en konu- eða barnarödd. Hún gefur manni hugmynd um hvernig geldingar fyrri alda hljómuðu. Aftur að Mealli. Hann stakk af frá ódæðinu og flúði til Frakklands og svo til Spánar, þar sem hann fékk fína stöðu. Eiginlega ekkert eftir hann hefur varðveist, nema sónötur fyrir fiðlu og sembal. Það er mikil synd, því ef marka má það sem Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari og Elina Albach semballeikari fluttu í Skálholti á laugardaginn, þá var Mealli frábært tónskáld. Tónlistin hans er fallega dreymandi, það er frelsi yfir henni, frumleiki sem maður á ekki að venjast frá þessu tímabili tónlistarsögunnar. Elfa Rún og Albach léku þrjár sónötur eftir tónskáldið. Semballeikurinn var frábær, tær og skýr, jafn og yfirvegaður. Fiðluleikurinn var líka magnaður, en þó mátti finna að nokkuð sárum tón. Ef til vill var hljóðfærinu sjálfu þar um að kenna. En öll hlaup voru nákvæm og andrúmsloftið í túlkuninni var sannfærandi, fullt af innlifun og andakt, en líka fjöri þegar við átti. Fleira en tónlist morðingjans var á dagskránni á tónleikunum. Örstutt einleiksverk fyrir fiðlu eftir Salvatore Sciarrino (f. 1947) var fallega spilað. Traumverk nr. 2 og 5 úr bók II eftir James Dillon (f. 1950) voru jafnframt grípandi. Leikurinn var einbeittur og þráhyggjukenndur, kraftmikill og lifandi. Tvær sónötur eftir Bach (BWV 1015 og 1023) voru einnig flottar, og Continuum fyrir orgel eftir Ligeti var skemmtilegur inngangur að þeirri síðari. Tónleikarnir voru sniðuglega samsettir. Samtímatónsmíðarnar og gömlu verkin eftir Mealli og Bach mynduðu áhrifamiklar andstæður. Hástemmd fegurð barokktímabilsins var enn meira hrífandi við hliðina á hrjúfri nútímatónlistinni. Myrkrið þar var sömuleiðis enn þá kröftugra við hliðina á ljósinu úr fortíðinni. Meira svona, takk.Niðurstaða: Glæsilegur flutningur og smekklega samansett efnisskrá.
Menning Tónlistargagnrýni Mest lesið Fréttatía vikunnar: Tenerife, kúabú og KFC Lífið Alec Baldwin með áfallastreituröskun: „Ég er glaðari þegar ég sef“ Lífið „Jákvæð líkamsímynd bjargaði lífi mínu“ Lífið Tveggja barna miðaldra móðir sem er sjúk í strákinn Gagnrýni Snúist ekkert um hvort börnin eigi íslenska eða erlenda foreldra Lífið Franskur stíll í Sigvaldahúsi í Álfheimum Lífið Stórfjölskyldan setur húsið á sölu Lífið Skotheldar hugmyndir fyrir konudaginn Lífið „Eins og staðan er núna styttist í endamarkið“ Lífið Uppselt á Noruh Jones á nokkrum mínútum Lífið Fleiri fréttir Tveggja barna miðaldra móðir sem er sjúk í strákinn Ævar vísindamaður í miðaldrakrísu Dansandi lögreglukór og fangarnir í Sniglabandinu Fyrirsjáanlegt fjölskyldudrama Bob og Robbie í bobba Fleetwood Mac: Þegar eftirlíkingin verður betri en raunveruleikinn Ómerkilegir þættir um merkilega konu Litríkar umbúðir en lítið innihald Illa bruggaðar Guðaveigar Vínartónleika skorti léttleika: Dansararnir stálu senunni Kynferðislega ófullnægður forstjóri finnur sér ungan graðfola Nýársswing með handbremsu Getuleysi á stóra sviðinu Barist um arfinn í Borgó Sjá meira