Matur

Sælgætiskaka með karamellu Rice Krispies

Rikka skrifar
Matarmyndir
Matarmyndir

Berglind Guðmundsdóttir heldur úti hinu vinsæla matarbloggi Gulur, rauður, grænn og salt. Þessi kaka er einstaklega góð og falleg í kaffiboðið

Botn

100 g suðusúkkulaði

80 g smjör

3 msk. síróp

150 g rjómakúlur

200 g Rice Krispies

Bræðið smjör, súkkulaði og síróp í potti við vægan hita þar til allt hefur blandast saman og bráðnað. Bætið því næst Rice Krispies saman við og blandið vel saman. Setjið í form og kælið í um klukkustund.

Fylling

250 ml rjómi

1 poki karamellu Nóa Kropp

Setjið Nóa Kroppið í poka og berjið í hann þannig að það myljist gróflega. Bætið saman við þeyttan rjómann.

Marengs

100 g sykur

100 g púðursykur

3 eggjahvítur

1 Risa Hraun, saxað smátt

Hrærið sykur, púðursykur og egg saman í dágóðan tíma (5-10 mínútur) þar til marengsinn er orðinn stífþeyttur.

Blandið grófsöxuðu Hrauni saman við með sleif. Setjið marengs á smjörpappír og bakið í 150°C heitum ofni í um 30-40 mínútur.

Súkkulaðikaramellusósa

1 poki Dumle-karamellur, með dökku súkkulaði

2-3 msk. rjómi

Setjið karamellur og rjóma saman í pott og bræðið saman við vægan hita. Setjið kökuna saman með því að setja fyrst Rice Krispies-botninn, því næst rjómafyllinguna, svo marengs. Setjið því næst ávexti að eigin vali yfir marengsinn ásamt súkkulaðikaramellusósu.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.