Konur og börn eru nú í fyrsta skipti í meirihluta þeirra flóttamanna sem reyna að komast frá Grikklandi til Makedóníu, en hingað til hafa fullorðnir karlmenn verið flestir þeirra sem flúið hafa til Evrópu vegna stríðsátaka, aðallega í Sýrlandi.
Fjallað er um málið á vef Guardian og er þar vitnað í nýjar tölur frá UNICEF, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Í þeim kemur fram að einn þriðji þeirra sem nú flýja sjóleiðina frá Tyrklandi til Grikklands eru börn en ekkert lát er á straumi flóttamanna til Evrópu þrátt fyrir að nú sé hávetur.
Fjöldi fólks hættir þannig lífi sínu til að komast til Evrópu en greint var frá því í gær að níu manns, þar af tvö börn, hafi fundist látin á vesturströnd Tyrklands en þau drukknuðu eftir að bátnum, sem þau ætluðu á til Grikklands, hvolfdi.
Í júní í fyrra voru 73 prósent þeirra flóttamanna sem komu til Evrópu fullorðnir karlmenn og aðeins 10 prósent voru yngri en 10 ára. Því er breytingin nú mikil þegar mun fleiri konur og börn leggja í þetta hættulega ferðalag.
Af þeim 272 sem drukknuðu á sjóleiðinni milli Tyrklands og Grikklands í janúar voru 60 börn, en á seinustu fimm mánuðum, að janúar meðtöldum hafa 330 börn drukknað á þessu svæði. Á seinasta ári drukknuðu alls 4000 flóttamenn þegar þeir reyndu að komast sjóleiðina til Evrópu.
Börn einn þriðji þeirra flóttamanna sem reyna að komast sjóleiðina til Evrópu

Tengdar fréttir

Merkel segir að flóttamenn þurfi að snúa til síns heima að stríði loknu
Angela Merkel hefur að undanförnu þurft í auknum mæli að bregðast við andspyrnu við komu flóttamanna til Þýskalands.

Austurríkismenn stefna að því að vísa 50 þúsund hælisleitendum úr landi
Austurrískir miðlar segja áætlunina munu meðal annars fela í sér að koma á efnahagslegum hvötum til að fá hælisleitendur til að yfirgefa landið fyrr.

Vilja að Grikkir sendi flóttafólk aftur til Tyrklands
Samkvæmt hugmyndum Hollendinga ætti Evrópusambandið að taka við 150 til 250 þúsund flóttamönnum á ári. Svíar segjast ætla að senda 60 til 80 þúsund flóttamenn til baka á næstu árum.

10.000 flóttabörn hið minnsta horfin í Evrópu
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Europol. Óttast er að fjöldi barna hafi ratað í hendur glæpasamtaka.

Um 40 drukknuðu við strendur Tyrklands
75 var bjargað en talið er að fjöldi látinna muni hækka.