Hveititortillur
100 g heilhveiti
60 g vatn
smá sjávarsalt
Aðferð
Blandið öllum hráefnum saman í skál, hnoðið í nokkrar mínútur á hveitistráðu borði. Setjið deigið í hreina skál og viskastykki yfir, leyfið deiginu að hefast í 30-60 mínútur eða þegar deigið hefur tvöfaldast að stærð. Eftir þann tíma fletjið þá deigið út í litlar pönnukökur og steikið á pönnu í mínútu á hvorri hlið. Setjið viskastykki yfir kökurnar svo þær verði ekki of þurrar.
Mangósalsa
1 mangó
1 lárpera
handfylli af kóríander
1 rauð paprika
1/2 rauðlaukur
ólífuolía
límónusafi
salt og pipar
1 ananas
1 tómatur
Aðferð
Skerið hráefnin afar smátt niður og blandið vel saman í skál. Best er að geyma salsa inn í ísskáp í hálftíma áður en þið ætlið að bera það fram.
Fiskurinn
700 - 800 g fiskur, þorskur eða ýsa
salt og pipar
1 1/2 tsk paprikukrydd
1 tsk cumin krydd
ólífuolía
Aðferð:
Hitið olíu á pönnu, skeri fiskinn í jafn stóra bita og kryddið með salti, pipar, paprikukryddi og cumin kryddi. Veltið fiskinum vel upp úr kryddinu og steikið á pönnu í 2 - 3 mínútur á hvorri hlið. Berið strax fram í heilhveitivefjum með fersku mangósalsa og grísku jógúrti.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.
