Mercedes Benz atvinnubílasýning Finnur Thorlacius skrifar 31. mars 2016 12:01 Mercedes Benz Sprinter.
Atvinnubílar frá Mercedes-Benz verða í sviðsljósinu nk. laugardag en þá heldur bílaumboðið Askja sérstaka atvinnubílasýningu að Fosshálsi 1 kl. 12-16. Mercedes-Benz er stærsti framleiðandi lúxus- og atvinnubíla í heiminum og hafa verið vinsælir hér á landi sem og víða um heim. Mercedes-Benz atvinnubílarnir eru fjölbreyttir og uppfylla ólíkustu þarfir við ýmsar aðstæður. Má þar nefna Citan, Vito og Sprinter sendibílana og glæsilegan V-Class. Þá ber mikið á vinnuþjörkunum Actros, Antos, Arocs og Ateco úr trukkadeildinni og einnig glæsilegum Tourismo hópferðabílum. Á sýningunni verða ýmsir sérútbúnir Mercedes-Benz bílar til sýnis í húsakynnum atvinnubíladeildar Öskju á laugardag. Má þar nefna VIP Sprinter, Jökla-Sprinter, 24 tíma þjónustu Sprinter, Tourismo hópferðabíl, V-Class með hjólastólaaðgengi, Actros dráttarbíl og fleiri öfluga bíla.
Mest lesið Dæmi um að fyrirtæki tapi tugum milljóna í „forstjórasvindli“ Innlent „Til hamingju hálfvitar“ Innlent Svikahrappur beið eftir flugferð framkvæmdastjórans Innlent Frans páfi er látinn Erlent Lögmaður þurfi ekki að hafa áhyggjur af þekkingu ráðherra Innlent Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Innlent Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Innlent Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Erlent Hvernig er nýr páfi valinn? Erlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent