Gæðavandamál í nýjum Tesla Model X Finnur Thorlacius skrifar 20. apríl 2016 10:27 Tesla Model X.
Nýi jepplingurinn frá Tesla, Model X sem nýverið hefur verið afhentur fyrstu kaupendum virðist vera með hin ýmsu gæðavandamál. Gárungarnir hafa sagt að smíði hans sé heimsins dýrasta “beta test” og að kaupendur hans séu í raun tilraunadýr. Þarna fer vissulega óvenjulegur bíll með vængjahurðum og hann er fær um að fara sprettinn í 100 á 3,2 sekúndum. Eitt dæmi um bilanir á bílnum er að kona ein í Bandaríkjunum festi kaup á 138.000 dollara útgáfu bílsins og á öðrum degi biluðu hurðir bílsins. Fleiri dæmi um bilaðar hurðir hans hafa komið upp. Konan þurfti að sætta sig við það að biðtími Tesla eftir viðgerðum á hurðunum er 2 vikur, vegna tíðra bilana Model X og á meðan getur hún ekki notað bílinn. Bilanir á hurðum hans er þó ekki eina vandamálið sem Tesla er nú að glíma við, meðal annars hafa gluggaupphalarar vera að bila, miðstöðin og Autopilot kerfið. Einnig hefur verið kvartað yfir göllum í samsetningu innréttingarinnar og að framrúðan framkalli tvöfalda sýn á veginn framundan. Nýir kaupendur bílsins virðast þó hafa talsvert háan sársaukaþröskuld gagnvart bilunum í bílnum og treysta Tesla fyrir því að leysa úr vandamálunum. Þeir skilja að þarna fer algerlega ný hönnun fram hjá nýjum bílaframleiðanda og eðlilega geta komið fram bilanir með bíl sem troðinn er af nýrri tækni. Sumir kaupendur hafa reyndar viðurkennt að ef samskonar bilanir hefðu átt sér stað við kaup á t.d. nýjum Cadillac bíl hefðu þeir brugðist mun verr við. Ekki ósvipuð vandamál komu upp með Tesla Model S bílinn og var þá biðlund og skilningur nýrra kaupenda á sama veg. Góðu fréttirnar fyrir nýja eigendur Tesla Model X er að svo virðist sem að Tesla sé að vinna ötullega að viðgerðum á þessum tíðu bilunum.Harla óvenjulegar hurðir á Tesla Model X.
Mest lesið Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum Erlent „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Viðskipti innlent Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Erlent Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Innlent Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Innlent