Í samtali við fréttastofu segist Þórdís í raun aðeins hafa lýst yfir áhuga á að sækjast eftir sætinu, hún hafi ekkert formlega kynnt ennþá hvað hún hyggist gera.
„En ég sagði í Borgarnesi að ég svona kastaði því út í kosmósið að ég hefði áhuga á að verða þingmaður,“ segir Þórdís.
Prófkjör verður haldið í Norðvesturkjördæmi
Á þinginu var samþykkt að við uppstillingu á framboðslista flokksins fyrir komandi Alþingiskosningar í haust skyldi halda prófkjör.
Þórdís Kolbrún hefur aldrei setið á þingi áður en hefur gegnt stöðu aðstoðarmanns innanríkisráðherra síðan í desember 2014. Hún var framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðismanna frá því vorið 2013. Hún var jafnframt kosningastjóri Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi fyrir síðustu Alþingiskosningar.
Haraldur Benediktsson hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn síðan árið 2013. Fyrir þann tíma starfaði hann sem bóndi og var í tæpan áratug formaður Bændasamtaka Íslands.

Á aðalfundinum var samþykkt ályktun þar sem fram kemur að Sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi fagni „þeim mikla árangri sem náðst hefur á yfirstandandi kjörtímabili. Bætt lífskjör, lækkandi skuldir heimila og fyrirtækja, lág verðbólga, lítið atvinnuleysi og fjölgun fjölbreytilegra starfa, traust stjórn fjármála ríkisins, lækkandi skuldir hins opinbera, góður viðskiptaafgangur, aukin fjárframlög í mikilvæga málaflokka samfara lækkun skatta, eru til marks um að vel hefur tekist til við stjórn landsins á þessum tíma.“ Þá er Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra og Ólöfu Nordal innanríkisráðherra þakkað sérstaklega í ályktuninni fyrir þeirra störf í þágu þjóðarinnar.