Eitthvað fyrir alla í Sports Direct 2. maí 2016 11:00 Hjalti Freyr Óskarsson, deildarstjóri skódeildar, Ottó Ingi Ingimarsson, aðstoðarverslunarstjóri, Ásta Sigrún Friðriksdóttir, verslunarstjóri, Guttormur Þorláksson, aðstoðardeildarstjóri skódeildar, Matarr Jobe, vörumóttökustjóri. Vilhelm
KYNNING. Verslun Sports Direct var opnuð hér á landi 26. maí árið 2012 en eins og flestir vita er Sports Direct alhliða íþróttavöruverslun. „Við höfum mun breiðara vöruúrval en hefðbundnar íþróttavöruverslanir og leggjum mikið upp úr því að bjóða eins lágt verð og hægt er,“ segir Ásta Sigrún Friðriksdóttir, verslunarstjóri í Sports Direct. Hugmyndin er að sögn Ástu að Sports Direct sé að einhverju leyti sjálfsafgreiðsluverslun, þar eru til dæmis stangir á öllum veggjum svo viðskiptavinir geti sjálfir sótt vörur sem eru hátt uppi, allar vörur eru hafðar frammi í versluninni og eru vel verðmerktar og passað er upp á að kubbar sem sýna fatastærð séu á öllum herðatrjám þannig að viðskiptavinir geti gengið að öllum stærðum vísum. „Af þessum sökum er verslunin kannski ekki jafn þétt mönnuð og einhverjir myndu vilja. Eftir fjögur ár hér á landi höfum við þó aðlagað okkur annars konar menningu en er til dæmis í Bretlandi þar sem minni áhersla er lögð á að veita góða þjónustu. Við höfum því aukið hefðbundnar kröfur fyrirtækisins um þjónustu en fylgjum þó í megindráttum kröfum keðjunnar sem hefur sannað sig víða um heim sem leiðandi lágverðsfataverslun.“ Allir nýir starfsmenn Sports Direct ganga í gegnum grunnþjálfun með mannauðsstjóra þar sem farið er yfir öll grunnatriði sem snúa að þjónustu og því hvernig verslunin virkar. „Allir starfsmenn okkar eru því þjálfaðir til að takast á við þær kröfur sem við og íslenskir neytendur gera,“ útskýrir Ásta.Fjölbreytt vöruúrval Allar vörur í versluninni eru keyptar beint frá vöruhúsi Sports Direct í Bretlandi sem leiðir til þess að hægt er að halda verðinu lágu. „Við fáum sendingar í hverri viku og því er vöruúrvalið mjög breytilegt,“ segir Ásta og nefnir að hjá Sports Direct geti ólíkir aðilar fundið það sem þá vantar. „Við erum með allt frá vörum fyrir hinn almenna einstakling sem stundar einhverja hreyfingu eða útivist upp í sérhæfðan fatnað fyrir hjólreiðafólk, hlaupara og þá sem stunda líkamsræktina af kappi auk þess að vera með bæði sund- og golfvörur. Einnig erum við með gallabuxur og annan hefðbundinn fatnað. Vöruúrvalið hjá okkur er ekki bundið við einhvern ákveðinn hóp. Við fáum inn fjölbreytta einstaklinga, allt frá ungum íþróttaiðkendum til eldri manna sem eru að leita sér að gallabuxum,“ segir Ásta og brosir.Aðeins erlend vefsíða Vefsíða Sports Direct.com er rekin af Sports Direct í Bretlandi og eru allar vörur afgreiddar úr miðlægu vöruhúsi þeirra í Bretlandi. „Sports Direct sér um að reka vefsíðuna sem þjónustar allan heiminn. Vöruúrvalið þar er mörgum sinnum stærra en í versluninni og er hægt að finna alls kyns gullmola eins og til dæmis gamlar fótboltatreyjur og fleira,“ nefnir Ásta.“ Þar sem vöruúrvalið í versluninni reynist síbreytilegt hefur ekki reynst mögulegt að afgreiða vörur í gegnum net eða síma úr versluninni í Kópavogi en öll þjónusta við vefsíðuna er í Bretlandi. „Til að halda verðinu lágu öllum til hagsbóta þá leyfum við Sports Direct-keðjunni að sinna netinu en við sinnum lágu verði fyrir gesti okkar í Kópavogi.“
Mest lesið Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Viðskipti erlent Einsleitni er ekki málið: „Ætlum við að gera þetta aftur?“ Atvinnulíf Vilja minnka líkurnar á því að vinna í Lottóinu Viðskipti innlent Milljarður í afgang í Garðabæ Viðskipti innlent Plasttappamálið flaug í gegnum þingið Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ Atvinnulíf Íhuga hærri tolla á alla Viðskipti erlent „Við bara tókum íslensku brjáluðu bjartsýnina á þetta“ Atvinnulíf Útflutningur gefur eftir en einkaneyslan stígur fram á sviðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Ný íbúðabyggð með betri loftgæðum Drægnikvíðastillandi dreki sem byggir á fornri frægð Bein útsending: Stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu Greiðsluáskorun Lukkuhjól hlaðið vinningum á opnun Raflands Sjá meira