Neyðarástand í Frakklandi framlengt yfir EM Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2016 13:14 Hermenn við Eiffel turninn. Vísir/AFP
Yfirvöld í Frakklandi hafa ákveðið að framlengja hæsta viðbúnaðarstig þar í landi um tvo mánuði, eða fram yfir Evrópumótið í Fótbolta og Tour de France hjólreiðakeppnina. Neyðarástandi var lýst yfir eftir hryðjuverkaárásirnar í París í nóvember. Þegar var búið að framlengja viðbúnaðarstigið um þrjá mánuði eða til 26. maí. „Hryðjuverkaógnin er enn mikil og Frakkland, eins og Evrópusambandið, er skotmark,“ sagði Bernard Cazeneuve, innanríkisráðherra Frakklands. Búist er við milljónum ferðamanna til Frakklands í júní og júlí vegna bæði EM og TDF. Þar á meðal verða fjölmargir Íslendingar. Viðbúnaðarstigið og yfirlýst neyðarástand gerir yfirvöldum kleift að setja fólk sem talið er vera ógn við almenning í stofufangelsi án dóms og laga. Lögreglan hefur einnig getað gert árásir á heimili fólks án dómsúrskurðar, en sú heimild fellur úr gildi með nýrri framlengingu. Um miðjan apríl sögðu yfirvöld Frakklands að frá árásunum hefðu um 3.500 leitir verið framkvæmdar, 56 höfðu verið færðir í varðhald og 69 settir í stofufangelsi.
Mest lesið Lalli Johns er látinn Innlent „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Innlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent Fleiri fréttir Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Sjá meira