Citroën DS3 Givency fyrir dömurnar Finnur Thorlacius skrifar 10. maí 2016 15:50 Skemmtilegur bíll fyrir dömurnar, Citroën DS3 Givency Le MakeUp.
Citroën í samstarfi við snyrtivöruframleiðandann Ginency býður nú sérstaka gerð DS3 bílsins með sér hólfum fyrir snyrtivörur og þær fylgja með í þessum snyrtilega bíl. Sérstakt hólf er á milli framsæta bílsins og þar má finna flest það sem auka má á fegurð bílstjórans eða farþeganna allra, þar á meðal úrval naglalakks. Fullu nafni heitir þessi bíll Citroën DS3 Givency Le MakeUp. Bíllinn verður framleiddur í takmörkuðu magni og t.d. verða aðeins í boði 500 slíkir í Bretlandi. Bílarnir eru allir í sama lit, þ.e. hvítir með fjólublátt þak og hliðarspegla og eru pínu dömulegir fyrir vikið. DS bílar Citroën tilheyra nokkursskonar lúxusarmi fyrirtækisins og í DS bíla er meira lagt en í hefðbundna Citroën bíla. Citroën DS3 Givency stendur á 17 tommu álfelgum og er með LED Vision Xenon aðalljós. Citroën gerir greinilega ráð fyrir að konur kunni vel að meta búnað eins og fjarlægðarskynjara að aftan, bakkmyndavél og búnað sem heldur við bílinn í brekku þegar af stað er farið, því allt er þetta staðalbúnaður. Að auki er hann með sjálfvirk aðalljós, upphitaða aðfellanlega hliðarspegla og öryggiskerfi sem lætur viðbragðsaðila sjálkrafa vita af árekstrum. Citroën hefur þó ekki sett neinn ofurrokk undir húddið á þessum bíl því þar verður að finna þriggja strokka og 110 hestafla bensínvél. Verðið á bílnum er 3,5 milljónir króna í Bretlandi og á 4,1 milljónir með blæju.
Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent