Heimir: Breytum þjóðhátíðardeginum í 22. júní Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. júní 2016 19:13 Heimir á hliðarlínunni í kvöld. Vísir/Vilhelm „
Það sáu allir sem voru að horfa hvaða þýðingu þetta hafði fyrir okkur. Okkar menn voru reiðubúnir að fórna öllu fyrir sigurinn,“ sagði Heimir en hann hrósaði einnig austurríska liðinu. „Þeir börðust til loka fyrir sigurmarkinu. Við vorum heppnir á köflum en sýndum frábært hugarfar út leikinn,“ sagði hann. „Það voru margir þrettir í lokin. Við höfum nánast spilað á sama liðinu í keppninni og það voru margir þreyttir fætur í liðinu.“ „En eins og við höfum sagt svo oft áður. Við erum stoltir af leikmönnum okkar.“ Hann segir að íslenska liðið hafi misst frumkvæðið eftir góða byrjun í kvöld. „Við gáfum Austurríki boltann of auðveldlega. Við byrjuðum vel, héldum boltanum vel og náðum að spila upp völlinn. Það gerðum við ekki vel gegn Ungverjalandi.“ „En svo skoruðum við markið og þá fara menn að hugsa um að fá ekki mark á sig. Við misstum frumkvæðið. En góð byrjun okkar gaf tóninn og hún gerir það oft í svona leikjum.“ Hann kvíðir ekki undirbúningi íslenska liðsins fyrir leikinn gegn Englandi á mánudag. „Miðað við hvernig undirbúningurinn var fyrir þennan leik veit ég að hann verður góður fyrir leikinn á mánudag.“ „Það var gaman að vinna þennan leik og komast í 16-liða úrslitin. En það var ekki minni sigur að lenda í öðru sæti riðilsins og fá auka tvo daga.“ „Það er ókosturinn við að vera í lokariðli keppninnar. Við hefðum mögulega aðeins fengið tvo frídaga. En við vissum allan tímann að mótherjinn yrði sterkur í 16-liða úrslitunum.“ Heimir var spurður hvernig viðbrögðin væru heima á Íslandi. „Orðum það þannig. Ég held að þýðing þessa sigurs fyrir íslensku þjóðina að það sé örugglega vilji nú til þess að breyta þjóðhátíðardeginum úr 17. júní í 22. júní.“
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Fótbolti Þrjátíu persónulegar bætingar á MÍ og Eir Chang tvöfaldur meistari Sport Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Fleiri fréttir Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Hafa ekki enn fagnað sigri eftir jól Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Kom inn á í fyrri háfleik og skoraði í fyrsta sinn í fimm mánuði Arnór Ingvi skoraði tvö mörk í bikarsigri Urðu að ósk Mourinho og kölluðu á útlenskan dómara Ein af þeim sem hefur haldið oftast hreinu í Evrópu Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Frakkar á toppinn fyrir slaginn við Ísland Sjá meira