Frumlegur reynsluakstur Finnur Thorlacius skrifar 22. ágúst 2016 12:59 Ekki er gert ráð fyrir að bílum sé lagt á hliðinni fyrir utan bílasöluna.
Konan sem reynsluók þessum Mercedes Benz jeppa fékk að reyna öryggisbúnað bílsins þó það hafi ef til vill ekki staðið til í upphafi. Gerðist það við lítinn fögnuð bílasölunnar þar sem bíllinn var fenginn. Þessi fremur óvenjulega bílalagning átti sér stað í Arlington í Virginíu ríki Bandaríkjanna um daginn. Það var ekki nóg með það að konan sem fékk bílinn lánaðan til að prófa hann hafi stórskemmt bílinn, heldur tókst henni að aka á fjóra aðra bíla í leiðinni og skemma þá talsvert líka. Talið er að konan hafi ruglast á bensíngjöfinni og bremsunni. Hún var með þrjá fjölskyldumeðlimi í bílnum í prufuakstrinum, auk eigenda bílasölunnar, en ekkert þeirra sakaði að ráði við óhappið. Fáir hafa lagt nýjum bilum þessarar bílasölu á hliðinni, en hún verður ekki sökuð um skort á frumleika hinni ágætu konu sem þetta afrekaði.Bíllinn hefði mátt snúa beinni í stæðinu, en kannski að auki á hjólunum.
Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent