Býr frítt í 350 milljón króna íbúð í New York 3. september 2016 09:00 Kim og Kanye GLAMOUR/GETTY
Kim Kardashian og fjölskylda hafa kvatt Los Angeles í bili og eru flutt tímabundið til New York. Þau búa að sjálfsögðu við allra bestu skilyrði og það án greiðslu í boði fyrirtækisins Airbnb. Íslendingar ættu nú að kannast við það fyrirtæki en það heldur úti leigusíðu sem hefur notið mikilla vinsælda hér á landi. Íbúðin er metin á 350 milljónir króna og fyrir alla aðra en Kim kostar nóttin í íbúðinni rúma milljón. Í íbúðinni eru fimm svefnherbergi og sex baðherberg og ætti því að fara nokkuð vel um Kim, Kanye og börn. Þau ættu líka að geta fengið sitt næði því það eru sjö stórar einkasvalir og einkasundlaug á þakinu. Kim tók sig til fyrir VMA´s verðlauna afhendinguna á sunnudaginn í íbúðinni og deildi með snapchat fylgjendum sínum þakklæti sínu á glæsilega snyrtiherberginu sem Airbnb hafði útbúið handa henni. glamour/skjáskotglamour/skjáskotglamour/skjáskotKim slappar af í nýju íbúðinni.glamour/skjáskot
Mest lesið Idris Elba og Jourdan Dunn sögð vera að stinga saman nefjum Glamour Frábærar hugmyndir að konudagsgjöfum Glamour Scarlett Johansson hjólar í forsetadótturina Glamour Fagurkerar fjölmenntu í opnun Geysir Heima Glamour Föstudagslag Glamour Glamour Stelpurnar sem breyttu sjónvarpssögunni Glamour Alþjóðlegi varalitadagurinn er í dag Glamour Verst klæddu stjörnurnar á AMA hátíðinni Glamour Mariah Carey opinberar samband sitt við dansarann sinn Glamour Sjálfsmyndir frægra á forsíðu Interview Glamour