11 rándýrir sportbílar sonar forseta Miðbaugs-Gíneu gerðir upptækir í Sviss 8. nóvember 2016 14:51 Hluti bílaflotans kominn á flutningabíla.
Þeir voru ekki af ódýrari gerðinni sportbílarnir sem svissneska lögreglan gerði upptæka fyrir skömmu í Sviss, en þeir voru í eigu sonar einræðisherrans Teodoro Nguema Obiang Mangue í Afríkuríkinu Miðbaugs-Gíneu. Bílarnir voru 11 af tölu og meðal annars af gerðunum Bugatti Veyron, Koenigsegg One:1 og Lamborghini Veneno Roadster, en aðeins voru framleiddir 9 slíkir Lamborghini bílar. Bílaflotinn hefur verið metinn að andvirði 900 milljóna og er það víst fremur varlega metið. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem bílar í eigu sonarins hafa verið gerðir upptækir í öðrum löndum en heimalandinu. Árið 2011 voru aðrir 11 bílar gerðir upptækir í París og voru þeir meðal annars af gerðunum Maserati MC12, Porsche Carrera GT, Ferrari Enzo, Maybach, Rolls Royce Phantom, Ferrari 599 GTO og tveir Bugatti Veyron bílar. Það er ekki víst að íbúum í Miðbaugs-Gíneu sé skemmt yfir öllum þessum bílaflota sem sonur einræðisherrans hefur fest kaup á fyrir ríkisfé. Lögreglan í Sviss gerði bílana nú upptæka vegna spillingarrannsóknar sem nú er í gangi gegn forseta Miðbaugs-Gíneu. Það er ekki að spyrja að einræðisherrunum í Afríku og spillingunni sem þeim fylgir.
Mest lesið Frans páfi er látinn Erlent Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Innlent Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Innlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Gripu innbrotsþjófa glóðvolga Innlent Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Erlent „Stjórnvöldum er að takast að loka Kvikmyndaskóla Íslands“ Innlent Hátt í þrettán stiga hiti á sumardaginn fyrsta Innlent Hvernig er nýr páfi valinn? Erlent Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Erlent