Zara Larsson var glæsileg á rauða dreglinum.Myndir/Getty
MTV EMA hátíðin, eða European Music Awards, fór fram í Rotterdam í Hollandi í gærkvöldi. Þar komu saman helstu stjörnur tónlistarsenunnar og fögnuðu.
Það var nóg um að vera á rauða dreglinum fyrir hátíðina. Tískan þar var ansi fjölbreytt og skemmtileg. Nóg var um áhættur en aðrir héldu sig á mottunni og klæddu sig í hefðbundnum stíl.
Hér fyrir neðan má sjá okkar uppáhalds dress frá gærkvöldinu.
Leikkonan Nina Dobrev var í fallegum lillabláum síðkjól.Tinie Tempa var flottur í óvenjulegum jakkaföt með sólgleraugu.Sænska söngkonan Zara Larsson var í fallegum hvítum blúndukjól.Jaden Smith er alltaf jafn flott klæddur.Bibi Zhou var í fallegri kápu við útvíðar hvítar buxur.Joan Smalls bar af í fallegum svörtum gegnsæum kjól sem sýndi hennar löngu lappir.Fyrirsætan Winnie Harlow var í síðerma blúndukjól.Charli XCX var greinilega í diskóstuði í þessari múnderingu.