Aron markahæstur í tapi Veszprem Smári Jökull Jónsson skrifar 27. nóvember 2016 17:30 Aron Pálmarsson lék með Veszprem í dag í tapinu gegn PSG. vísir/getty
Aron Pálmarsson kom aftur inn í lið Veszprem eftir fjarveru þegar liðið mætti PSG í stórleik í Meistaradeildinni í handknattleik. Bæði liðin setja stefnuna hátt á tímabilinu enda með afar sterka leikmenn innanborðs. Leikurinn fór fram á heimavelli PSG og var jafnt með á liðunum í byrjun. Aron kom Veszprem í tveggja marka forystu þegar um tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik en þá tók PSG hins vegar við sér, komst yfir og var 14-12 yfir í hálfleik. Í síðari hálfleik hélt svo baráttan áfram. Um miðjan hálfleikinn komst PSG í 20-15 og eftir það var ekki aftur snúið. Franska liðið hélt forystunni út leikinn og vann að lokum fjögurra marka sigur, 28-24. Aron Pálmarsson skoraði 5 mörk úr 9 skotum í leiknum í dag og var markahæstur í liði Veszprem. Hjá PSG var Uwe Gensheimer markahæstur með 6 mörk og Nikola Karabatic og Luka Stepanic skoruðu 5. Parísarliðið situr í efsta sæti A-riðils með 14 stig en Veszprem er í 4.sæti með 8 stig, jafnmörg og Kiel.
Erlendar Handbolti Íþróttir Mest lesið Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Fótbolti Í beinni: Man. Utd. - Bodø/Glimt | Fyrsti heimaleikur Amorim Fótbolti Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins Fótbolti Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Fótbolti Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Handbolti Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Handbolti Fór holu í höggi yfir húsið sitt Golf Kærir föður sinn fyrir fjársvik Sport Leggja niður störf og föst laun stórmeistara Sport Fleiri fréttir Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Skrýtið en venst Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri ÍBV (eða Haukar) í erfiðan slag í bikarnum „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Porto lagði Val í Portúgal Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Sameinast litla bróður hjá Kolstad Tímabært að breyta til Benedikt markahæstur í sannfærandi sigri Kolstad Aftur eins marks tap en nú tekur EM við Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands Sjá meira