TripAdvisor veitir Ölgerðinni viðurkenningu annað árið í röð Stefán Árni Pálsson 23. nóvember 2016 13:30 Flottur árangur hjá Ölgerðinni. vísir
TripAdvisor, stærsti ferðavefur í heimi, hefur veitt Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni sérstaka viðurkenningu annað árið í röð fyrir Taste the Saga, sérsniðna dagskrá fyrir erlenda ferðamenn í Gestastofu sinni, þar sem er farið yfir íslenska bjór- og vínmenningu. TripAdvisor fær yfir 350 milljón heimsóknir í hverjum mánuði og er langstærsti ferðavefur í heimi. „Það er frábær árangur að fá þessa miklu viðurkenningu einu sinni, hvað þá annað árið í röð, enda kemur hún beint frá notendunum, gestunum, sem fara af eigin frumkvæði og verðlauna okkur með þessum hætti. Ég hef sagt það áður og ítreka að Gestastofan okkar er í raun nýsköpun í rótgrónu fyrirtæki sem teygir anga sína inn í ferðamennsku á Íslandi,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar. „Taste the Saga Olgerdin Brewery Tour er aðeins eitt fjölmargra námskeiða sem boðið er upp á í Gestastofu Ölgerðarinnar en hún hefur nú verið starfrækt í tæp sjö ár. Í Gestastofunni er jafnframt rekinn Bjórskóli Ölgerðarinnar sem hefur útskrifað á fimmtánda þúsund nemendur, Vínskóli Ölgerðarinnar, Bjórþjónanám Ölgerðarinnar sem er sérsniðið fyrir starfsfólk veitingahúsa, Bragðað á sögunni sem er fyrir stærri hópa og nýjasta námskeiðið er Framhaldsnám Bjórskóla Ölgerðarinnar þar sem áhersla er lögð á handverksbrugghús.
Mest lesið Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Atvinnulíf Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina Neytendur Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Viðskipti erlent Vilja nota geimflaugar til að flytja hergögn hvert sem er Viðskipti erlent Breytist hratt næstu árin hvaða fyrirtæki teljast stærst og best Atvinnulíf Að segja upp án þess að brenna brýr Atvinnulíf „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Viðskipti innlent Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Viðskipti innlent Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira