Kylie Jenner gefur út sitt eigið dagatal Ritstjórn skrifar 5. desember 2016 10:30 Glamour/Skjáskot
Kylie Jenner mun gefa út sitt eigið dagatal fyrir árið 2017. Dagatalið fer á sölu í nýrri verslun Kylie þann 10.desember. Það sem hefur þó vakið mikla reiði er valið á ljósmyndara til þess að skjóta dagatalið. Terry Richardson sá um ljósmyndirnar en hann er afar umdeildur innan tískubransans. Hann hefur oft og mörgum sinnum verið sakaður um kynferðislegt áreiti og ofbeldi af fyrirsætum sínum. Myndirnar hans eru einnig oftast afar kynferðislegar og dagatalið hjá Kylie er engin undantekning. Á snapchat aðgangi Kylie í gærkvöldi sýndi hún frá nokkrum síðum úr dagatalinu og þar má meðal annars sjá hana sitja fyrir á nærbuxunum með snáki. Kylie sýndi frá nokkrum síðum á snapchat aðganginum sínum.
Mest lesið Marc Jabobs byrjar með látum á Instagram Glamour Litrík og töffaraleg lína Louis Vuitton Glamour Kraftgallinn er kominn aftur Glamour Förðunin fyrir helgina Glamour Ralph Lauren skrifar ævisögu sína Glamour Ný hugmynd að buxum kynnt til leiks í Tókýó Glamour Langar þig í Glamour x Ellingsen hettupeysu? Glamour Auglýsing Zara vekur hörð viðbrögð Glamour Vorlína Rihanna og Puma innblásin af Marie Antoinette Glamour Nicole Kidman glæsileg í Armani flauelskjól Glamour