Fjölmiðlar í Bandaríkjunum halda því fram að hjónin Kim Kardashian og Kanye West búi hvort í sínu lagi þessa dagana. Hann var lagður inn á spítala í seinustu viku vegna ofþreytu, næringarskorts og fleira en mikið álag hafði verið á honum seinustu mánuði.
Samkvæmt heimildum People er Kanye allur að koma til og það aðeins tímabundið ástand að þau séu hvort á sínum staðnum. Kim sé að hugsa hvað sé best fyrir börnin og hún telur að Kanye þurfi að ná sér að fullu áður en þau geti búið saman aftur.
Kim og Kanye dvelja hvort á sínum staðnum
