Þórir um íslenska kvennalandsliðið: Leikmenn þurfa að vera í toppþjálfun allt árið
Ísland komst á þrjú stórmót í röð, EM 2010 og 2012 og HM 2011, en síðan hallaði undan fæti hjá liðinu og árangurinn síðustu ár hefur ekki verið góður.
Axel Stefánsson var ráðinn þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í sumar. Hann kemur úr sama umhverfi og Þórir en hann þjálfaði B-landslið Noregs í fjögur ár. Þeir þekkjast því vel.
Axel hefur tekið líkamlega þáttinn í gegn hjá íslenska liðinu og leikmenn þess voru m.a. settir í þrekpróf sem kom ekki nógu vel út. Þórir segir að leikmenn beri ábyrgð á sínu líkamlega ásigkomulagi.
„Það er kominn tími til að snúa við og stokka spilin upp á nýtt. Það er geysilega mikilvægt að þeir leikmenn sem ætla að vera í þessu séu í toppþjálfun allt árið,“ sagði Þórir í samtali við Tómas Þór Þórðarson í kvöldfréttum Stöðvar 2.
„Þetta er 11-12 mánaða íþrótt. Leikmenn þurfa að bera ábyrgð á því og læra að líkaminn er verkfæri í boltanum. Þær þurfa að sjá til þess að þær séu í toppformi.“
Tengdar fréttir

Einstakt EM-ár hjá einni þjóð
Þjálfarar Evrópumeistara karla og kvenna í handbolta eiga það sameiginlegt að vera Íslendingar. Það er sögulegt. Sama þjóð hefur aldrei átt tvo þjálfara Evrópumeistara í handbolta á sama árinu.

Stelpurnar hans Þóris vörðu titilinn
Noregur varð í kvöld Evrópumeistari í handknattleik kvenna annað mótið í röð. Þórir Hergeirsson, þjálfari liðsins, heldur því áfram að bæta við sig skrautfjöðrum. Noregur lagði Holland, 30-29, í mögnuðum úrslitaleik.

Þórir missti móður sína daginn fyrir Evrópumótið
Þórir Hergeirsson, þjálfari nýkrýndra Evrópumeistara Noregs, sagði ekki frá því að hann missti móður sína daginn fyrir Evrópumót kvenna í handbolta.

Þórir: Þar finnst mér fótboltinn hafa farið fram úr sér
Fótboltinn hefur farið fram úr sér í að einstaklingurinn verði stærri en liðið. Þetta sagði Þórir Hergeirsson, þjálfari norsku Evrópumeistarana í handbolta, í samtali við Tómas Þór Þórðarson, en brot úr viðtalinu var sýnt í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Fyrstu íslensku jólin hjá Þóri og fjölskyldunni í átta ár
Þórir Hergeirsson gerði norska kvennalandsliðið í handbolta að Evrópumeisturum í þriðja sinn og vann sitt tíunda gull á stórmóti. Hann syrgir móður sína yfir jólahátíðina en hann ver nú jólunum í fyrsta sinn síðan 2008 í uppeldisbæ sínum, Selfossi.

Þórir: Þegar við vinnum er ég kóngur en ef ég tapa er ég hálfviti
Þórir Hergeirsson segir Norðmenn of góðu vanir og kunna ekki alltaf að meta árangur kvennalandsliðsins sem hann gerði að Evrópumeisturum í þriðja sinn í desember.