49 lið og yfir 300 leikmenn tóku þátt í mótinu og var fyrri hluti spilaður á netinu.
Á endanum sigruðu Einherjar með þremur sigrum gegn tveimur, en þeir tóku einn sigur með sér úr undankeppninni, þar sem þeir voru eina taplausa liðið.
Einherjar
Natanel Demissew – hoppye
Kristófer Númi Valgeirsson – Númi
Jens Pétur Clausen – Clausen
Vigfús Ólafsson – Fúsi
Birkir Grétarsson – BibbiDESTROY
Axel Ómarsson – Aseal
Það voru Ljósleiðarinn, Tölvutek, Hringiðan Internetþjónusta og Hringdu sem stóðu að baki Íslandsmótinu í Overwatch og þar sem áætlað heildarverðmæti verðlauna er yfir 1.400.000 krónur.
Meðlimir Einherja fá fríar eitt gíg ljósleiðaratengingar í rúmt ár að verðmæti um 900.000 krónur (6 x tengingar til áramóta 2017/2018) og verður hægt að velja á milli 1GB nettenginga í gegnum ljósleiðara frá bæði Hringiðunni internetþjónustu og Hringdu.
Þá fær landsliðið í Overwatch fær einnig 210.000 krónur í peningum og þar að auki 120.000 krónu gjafabréf frá Tölvutek. Heildarverðmæti verðlauna hjá landsliðinu verða 1.230.000 krónur.
Silfurliðið, Team Hafficool, fær 90.000 í peningum og þar að auki 60.000 króna gjafabréf frá Tölvutek. Heildarverðmæti hjá silfurliðunu er 150 þúsund krónur.
Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á Twitch.tv og var lýst af Bergi Theódórssyni og Atla Stefáni Yngvasyni. Óli GeimTV sjá um að kynna. Hægt er að sjá hann hér.

