Fyrsta skóflustungan tekin að nýrri ÓB stöð í Reykjanesbæ Finnur Thorlacius skrifar 3. mars 2017 16:56 Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olíuverzlunar Íslands, og Steinar Sigtryggson, útibússtjóri félagsins á Suðurnesjum, tóku í dag fyrstu skóflustunguna að nýrri ÓB stöð við Aðalgötu í Reykjanesbæ.
Fyrsta skóflustunga var tekin í dag að nýrri ÓB stöð sem mun standa við Aðalgötu 60 í Reykjanesbæ. ÓB stöðvar eru sjálfsafgreiðslustöðvar í eigu Olíuverzlunar Íslands hf. en fyrsta sjálfafgreiðslustöð félagsins var opnuð í Hafnarfirði árið 1996. Í dag eru sjálfsafgreiðslustöðvarnar yfir þrjátíu talsins víðsvegar um landið. Áætlað er að nýja stöðin opni við Aðalgötu með vorinu. ,,Til að byrja með verðum við eingöngu með sjálfsafgreiðslustöð við Aðalgötu í Reykjanesbæ en markmiðið til framtíðar verður að reisa á lóðinni myndarlega Olís þjónustustöð með því vöruboði sem við höfum upp á að bjóða. Vaxandi fjöldi ferðamanna kallar á stækkun á þjónustuneti félagsins og erum við stolt af því að geta stækkað við okkur hér í Reykjanesbæ," segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olíuverzlunar Íslands. ,,Það er mjög ánægjulegt með það að félagið skuli vera að vaxa og eflast í Reykjanesbæ. Hér er mikill vöxtur í ferðaþjónustu og því mikilvægt fyrir okkur að geta mætt þeim vexti með góðri þjónustu en á nýrri stöð verður gott aðgengi fyrir alla viðskiptavini félagsins hvort heldur sem um einstaklingsbifreiðar eða stærri atvinnutæki sé að ræða," segir Steinar Sigtryggson, útibússtjóri Olíuverzlunar Íslands á Suðurnesjum.
Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent