Æ, þessir gömlu Óttar Guðmundsson skrifar 18. mars 2017 07:00 Í æskudýrkun samtímans er ellin hinn skilgreindi óvinur. Samkvæmt opinberum tölum verða íslenskar konur allra kvenna elstar og íslenskir karlmenn standa þeim ekki langt að baki. Þessi fjölgun kostar samfélagið gífurlegar fjárhæðir. Heilbrigðiskerfið er að kikna undan langveikum ellilífeyrisþegum. Hægfara gamalt fólk er til stöðugra vandræða í umferðinni. Eldri borgarar kunna ekki nýjustu tækni og skilja ekki samfélagsmiðla. Hrukkur og samfallinn líkami falla engan veginn að líkamsdýrkun nútímans. Sem betur fer er fólk farið að gera sér grein fyrir þessum vandamálum sem stafa af gömlu fólki og takmarkalausri frekju eldri borgara. Þeir sölsa undir sig bestu húsin, bestu lánin, bestu sumarbústaðalóðirnar og bestu rúmin á sjúkrastofum spítalanna. Á samfélagsmiðlunum hafa menn blessunarlega farið að spyrna við fæti. Gamalmenni sem hafa sig í frammi eru réttilega úrskurðuð elliær. En það er ekki nóg. Sennilega væri einfaldast að losa samfélagið við gamalmennin með því að gefa þeim líknandi pillu þegar þau ná eftirlaunaaldri. Með þessu mætti spara ótrúlegar fjárhæðir í heilbrigðiskerfinu. Húsnæðisekla í bæjum og borgum heyrði sögunni til. Erfðamál yrðu auðveldari vegna þess að allt væri hægt að skipuleggja með fyrirvara, jarðarför, sumarfrí og búskipti. Enginn þyrfti að missa af Kanaríeyjaferð til að sitja yfir fársjúku gamalmenni. Ferðamannaiðnaðurinn mundi blómstra enda einungis ungt og fallegt fólk á götunum. Þetta hefði jákvæð áhrif á kaupmátt almennra borgara, athafnafrelsi fólks og hagvöxtinn. Þjóðin losnaði við raus ellismellanna sem er úr öllum takti við nýjustu strauma í samfélaginu. Verðum við ekki að losa þjóðfélagið við gamla fólkið, alvarlegustu ógnunina við velferð og velsæld almennings? Sextíu og sjö ár eru fjandans nóg.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Óttar Guðmundsson Mest lesið Áslaug Arna er leiðtoginn sem Sjálfstæðisflokkurinn þarf Hafrún Kristjánsdóttir Skoðun Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun Hvort er meira í anda Sjálfstæðisflokksins? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Opið bréf til bæjarstjóra Kópavogs Ágústa Dröfn Kristleifsdóttir Skoðun Söngvakeppnin og hömlulaus áfengisdýrkun Björn Sævar Einarsson Skoðun Á hlóðum Mennta- og barnamálaráðuneytisins Meyvant Þórólfsson Skoðun Harka af sér og halda áfram Hulda Jónsdóttir Tölgyes Skoðun Halldór 22.02.2025 Halldór Áfastur plasttappi lýðræðisins Þórður Snær Júlíusson Skoðun Aðgát skal höfð... Hildur Þöll Ágústsdóttir Skoðun
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun