Það er Lego City Undercover í hnotskurn.
Leikurinn var áður gefinn út fyrir Nintendo Wii U árið 2013, en var uppfærður fyrir nýjustu tölvurnar og PC fyrr í mánuðinum. Undirritaður spilaði leikinn í PS4. Með nýju útgáfunni hefur verið opnað fyrir samspilun og geta tveir vinir nú spilað leikinn saman og upplifað sína eigin „Buddy-Cop“ mynd.
Færið ykkur Riggs og Murtaugh.
Það kom reglulega fyrir að ég hló upphátt og mikið að leiknum.
(Ég mæli sérstaklega með þessum Shawshank/Morgan Freeman brandara)
Borgin Lego City er stór og umfangmikil. Hún er nokkurs konar samblanda af helstu borgum Bandaríkjanna, en þar er einnig að finna annars konar svæði, eins og sveitir og fjöll. Það er mikið líf í borginni og hægt að ferðast um hana í fjöldanum öllum af farartækjum.
Eftir sögunni lýkur er af nógu að taka og hægt er að spila öll borð aftur og sækja hluti sem ekki var hægt að sækja áður. Jafnvel of mikið, þar sem þetta virðist endalaust. Chase finnur ýmis dulagervi í leiknum sem nýtast við mismunandi tækifæri. Þjófurinn getur opnað hurðir og öryggisskápa, námumaðurinn getur meðhöndlað sprengiefni og svo framvegis.
Einnig er að hægt að finna ný farartæki, en bílar eru frekar ósammvinnuþýðir í beygjum og geta reynst manni erfiðir. Þá er einnig hægt að setja út á sjónarhorn leiksins. Oft á tíðum átti ég erfitt með að sjá hvert ég var að fara með hann Chase. Annars er í raun lítið hægt að setja út á Lego City Undercover.
Tónlistin er skemmtileg og talsetning er þrusugóð. Þá er spilunin einnig skemmtileg og svo eru sagan og grínið það besta við leikinn.