Hátt í 400 almennir borgarar verið felldir í árásum Bandaríkjahers Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. apríl 2017 23:14 Frá flóttamannabúðum í útjaðri hinnar stríðshrjáðu Mósúl í norðurhluta Írak. Vísir/AFP
Í yfirlýsingu frá Pentagon, höfðustöðvum bandaríska varnarmálaráðuneytisins, í dag kom fram að 352 almennir borgarar hefðu týnt lífi í árásum Bandaríkjahers á bækistöðvar ISIS í Írak og Sýrlandi frá árinu 2014. The Guardian greinir frá.Þessar tölur hersins stangast á við tölur frá stýrihópum sem fylgjast með árásum af þessu tagi. Hópurinn Airwars gerir til dæmis ráð fyrir að rúmlega þrjúþúsund almennir borgarar hafi látist í árásum sem Bandaríkin áttu aðild að. „Við erum miður okkar yfir þessum óviljandi dauðsföllum,“ sagði í yfirlýsingu frá Pentagon. „Við vottum fjölskyldum fórnarlambanna og annarra, sem orðið hafa fyrir áhrifum af árásunum, samúð okkar.“ „Allar hugsanlegar ráðstafanir voru gerðar,“ sagði einnig í yfirlýsingunni en loftárásirnar hafi samt sem áður bitnað „óviljandi“ á mannslífum. Þá kom fram að 45 almennir borgarar hafi látist frá því í nóvember á síðasta ári og að 26 hafi látist í þremur aðskildum loftárásum í mars síðastliðnum í grennd við borgina Mósúl í norðurhluta Íraks. Í sama mánuði létust 14 í árás sem kom af stað sprengingu á öðrum stað og þá létust einnig 10 í árás á höfuðstöðvar ISIS. Enn stendur yfir mat á 42 tilkynningum um dauðsföll almennra borgara í aðgerðum Bandaríkjahers og bandamanna hans gegn ISIS.
Erlent Mið-Austurlönd Sýrland Mest lesið Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Erlent Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Innlent Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Innlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs Innlent Fleiri fréttir Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Fjölga flugmóðurskipum og herþotum í Mið-Austurlöndum Sjá meira