Eftir mikið hark í heilan vetur réðst tímabil Man. Utd á einum leik. Hefði hann tapast hefði tímabilið verið vonbrigði en af því hann vannst þá er tímabilið skráð sem vel heppnað. Stutt á milli.
Sigur í Evrópudeildinni var eini miði United í Meistaradeildina á næstu leiktíð og ef liðið færi ekki þangað þá fengi það líklega ekki þá leikmenn sem það vill fá. Þá leikmenn verður félagið líka að fá ætli það sér aftur á toppinn. Það var því gríðarlega mikið undir.
„Þetta var erfitt tímabil þar sem mér leið stundum eins og liðið mitt væri lélegasta lið heims og að ég væri lélegasti knattspyrnustjóri heims. Við komumst samt í Meistaradeildina og unnum þrjá titla. Við förum í Meistaradeildina af því við unnum titil en ekki af því við enduðum í fjórða sæti,“ sagði Jose Mourinho, stjóri Man. Utd.
„Við fáum þann heiður að leika gegn Meistaradeildarmeisturunum um Ofurbikar UEFA og það er því mitt álit að þetta hafi verið gott tímabil.“
Mourinho: Leið stundum eins og við værum lélegasta lið heims

Tengdar fréttir

Stórt kvöld fyrir Man. Utd en stærra kvöld fyrir Manchester
Íbúar í Manchester eru í sárum eftir hryðjuverkaárásina í vikunni en David Beckham segir að sigur Man. Utd í Evrópudeildinni í gær hafi fært borginni smá gleði á erfiðum tíma.

Manchester United vann Evrópudeildina og komst í Meistaradeildina
Manchester United spilar í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en þetta varð ljóst eftir að liðið vann 2-0 sigur á hollenska liðinu Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á Vinavöllum í Solna í Svíþjóð í kvöld.

Magnaður árangur hjá Jose Mourinho í úrslitaleikjum | Setti met í kvöld
Jose Mourinho gerði í kvöld Manchester United að Evrópudeildarmeisturum eftir 2-0 sigur á Ajax í úrslitaleik í Stokkhólmi.

Pogba: Enginn getur sagt neitt núna
Paul Pogba átti góðan leik á miðju Manchester United í kvöld í 2-0 sigrinum á Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar og markið hans í fyrri hálfleik skipti gríðarlega miklu máli fyrir liðið.