„Það er náttúrulega ekkert annað í stöðunni. Það vildi enginn fara í samstarf við Sjálfstæðisflokkinn enda er hann ekki stjórntækur eins og hann er núna,“ segir Birgitta í samtali við Vísi.
„Ég hjó eftir því að hann sagðist hafa talað við formenn allra flokka en hann hefur náttúrulega aldrei litið á Pírata sem flokk, sem eru ákveðin meðmæli.“
„Ég vona að þetta dragist ekki eins og síðast og ég vona að Bjarni veiti ekki starfsstjórn forystu.“
Sýni mátt fólksins
„Það eru ánægjulegar fréttir. Ég var úti á Austurvelli til að sýna brotaþolum í þessum málum stuðning og þar kom einmmitt fram að það munu vera mótmæli á laugardagsmorgnum til að krefjast stjórnarskrárbreyitnga,“ segir Birgitta en efnt var til mótmæla á Austurvelli í dag klukkan fjögur undir yfirskriftinni „Mótmælum þöggun og yfirhylmingu Sjálfstæðisflokksins!“Píratar sögðust fyrr í dag vilja að breytingar á stjórnarskrá nái í gegn áður en þing verður rofið og segir Birgitta að mörg þau vandamál sem upp hafi komið í samfélaginu upp á síðkastið væru úr sögunni með breyttri stjórnarskrá.
„Það þarf tvö þing til að ná í gegn breytingum. Þannig að við erum allavega að koma þessu til þjóðarinnar og hætta að láta eins og þetta skipti ekki máli. Ef við værum með þessa nýju stjórnarskrá þá væri mikið af þessum vandamálum ekki til staðar.“
Hún segir að við taki grasrótarstarf innan Pírata. Mikil vinna hafi verið unnin í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í vor og muni hún nýtast til að undirbúa þingkosningar.
„Þessir atburðir sem hafa verið núna að gerast eru bara vitnisburður um hvað fólk getur gert.“