Í gegnsæjum leggings á galakvöldi Ritstjórn skrifar 13. september 2017 11:30 Glamour/Getty
Kim Kardashian er vissulega trendsetter en við erum ekki vissar um þetta hér dress? Tískuvikan í New York er í fullum gangi og Kim Kardashian lætur sig að sjálfsögðu ekki vanta enda vekur götutíska hennar yfirleitt meira athygli en annarra. Margir ráku upp stór augu þegar hún var mynduð á leið sinni í Daily Fashion Front Row galakvöldið en hún klæðist þunnum leggingsbuxum og magatopp, en buxurnar eru svo þunnar að nærfötin sjást greinilega. Í raun eins og hún sé í nælonsokkabuxum og gleymdi hreinlega að smella sér í kjól/bol yfir. Kannski er það vegna þess að flassið frá myndavélum er svona mikið að nærfötin sjást svona greinilega? En ef við þekkjum raunveruleikastjörnuna rétt þá er þetta dress útpælt, mögulega næsta trend í uppsiglingu? Það mundi allavega spara okkur smá tíma á morgnana ... Ásam systur sinni Kendall Jenner á galakvöldinu en þær hafa greinilega ekki talað sig saman um í hverju þær ætluðu að vera áður en þær mættu.
Mest lesið Tommy Ton opnar eigin vefsíðu Glamour Fylgja SKAM eftir með glænýrri seríu Glamour Hápunktar Chloé: Snákaskinnsmunstur í allri sinni dýrð Glamour Ný lína 66°NORTH x Soulland Glamour Brad Pitt og Sienna Miller nýjasta stjörnuparið? Glamour Stjörnum prýddur tískupallur fyrir H&M og Balmain Glamour Kim Kardashian snýr aftur á samfélagsmiðla Glamour Blúndu-leggir og þykkar kápur Glamour Tískuljósmyndarinn Kári Sverriss opnar heimasíðu Glamour Kim Kardashian lýsir árásinni í smáatriðum Glamour