Jarðskjálfti mælist nálægt kjarnorkutilraunasvæði Norður-Kóreu Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 23. september 2017 10:55 Frá tilraunaskoti Norður-Kóreu í maí síðastliðnum. Vísir/AFP
Jarðskjálfti að stærðinni 3,4 mældist í dag í Norður-Kóreu. Talið er að hann hafi átt upptök sín á því svæði sem ríkið hefur framkvæmt kjarnavopnatilraunir sínar. Jarðskjálftafræðingar í Kína segja að það bendi til þess að ríkið hafi gert aðra kjarnavopnatilraun en yfirvöld í Suður-Kóreu segja að mögulega hafi verið um náttúrulegan jarðskjálfta að ræða vegna þess að hljóðbylgjur sem fylgi kjarnorkutilraunum hafi ekki mælst. Auk þess sem skjálftinn var mun minni en þeir sem mælst hafa þegar um kjarnorkutilraun hefur verið að ræða. Síðast gerðu Norður-Kóreumenn kjarnavopnatilraun þann þriðja september síðastliðinn og var þar um að ræða langöflugasta kjarnavopn sem ríkið hefur gert tilraunir með hingað til.Slagsmál leikskólabarna Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, brást í gær við nýjum viðskiptaþvingunum sem Trump fyrirskipaði gegn einræðisríkinu á fimmtudag sem og eldræðu forsetans á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna frá því á mánudag þar sem forsetinn hótaði fyrrnefndri gereyðileggingu ef Kim-stjórnin myndi ekki stöðva kjarnorkuáætlun sína. Norður-Kóreumaðurinn ráðlagði Trump að vanda orðaval sitt og sagði hegðun hans á allsherjarþinginu „geðsjúka“. Ræða Trumps hefði í raun verið stríðsyfirlýsing og myndi stjórn Kims hugsa vandlega um hvernig henni bæri að svara. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir að líkja megi orðaskaki Donald Trump Bandaríkjaforseta og Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu við slagsmál leikskólabarna.
Norður-Kórea Mest lesið Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Erlent Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Innlent Hellisheiði lokað til vesturs og fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í alla nótt Innlent Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku Innlent Ólíklegt að hættustigið verði lækkað á komandi árum Innlent Bandaríkin muni semja Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Máttu ekki vísa mæðgunum úr félaginu í fimmtán ár Innlent Fleiri fréttir Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Sjá meira