Airwaves dressið er klárt! Ritstjórn skrifar 31. október 2017 11:15
Airwaves tónlistarhátíðin byrjar formlega á morgun, og við erum að gera okkur tilbúnar fyrir skemmtunina. Dressið verður klárlega að vera tilbúið, en það getur verið nokkuð snúið að klæða sig fyrir hátíðina. Skórnir verða að vera þægilegir, því maður gengur og stendur mikið. Háu hælarnir verða því eftir heima og ætlum við frekar að velja þægilega strigaskó í staðinn. Yfirhöfnin verður að vera hlý, og kemur gerviloðspels sterkur inn hjá okkur. Hitt má leika sér með, en oft vill maður vera fínn til fara og vera í partýgírnum. Glamour verður með nokkur dress dagsins á meðan hátíðinni stendur. Góða skemmtun! Toppurinn er frá Zöru og kostar 4.595 krónur. Buxurnar eru frá Zöru og kosta 4.995 krónur. Skórnir eru frá Fenty Puma og fást í Húrra Reykjavík. Þeir kosta 19.990 krónur. Sokkarnir fást í Geysi og eru frá Beck Söndergaard, þeir kosta 990 krónur. Pelsinn er frá Sand og fæst í Mathilda, hann kostar 69.990 krónur.
Mest lesið Frábærar hugmyndir að konudagsgjöfum Glamour Kim komin í smellubuxur Glamour Katy Perry með sérstakt hárskraut Glamour „Fúskarinn er andlegur róni en þrátt fyrir það gæti hann gerst andlegur leiðtogi“ Glamour Vilja líka banna "microbeads“ í Bretlandi Glamour Gucci Bloom - fyrsti ilmur Alessandro Michele Glamour Klæðum okkur í liti um helgina Glamour Gucci opnaði tískuvikuna í Mílanó með neglu Glamour Marilyn Monroe hefði fagnað 90 ára afmæli sínu í dag Glamour Blac Chyna nakin og ólétt á forsíðu Paper Glamour