Réðst á tvo lögregluþjóna með hnífi Samúel Karl Ólason skrifar 1. nóvember 2017 11:17 Annar lögregluþjónninn var stunginn í hálsinn og var fluttur á sjúkrahús. Vísir/AFP
Lögreglan í Túnis hefur handtekið mann sem réðst á tvo lögregluþjóna nærri þinghúsinu í höfuðborginni, sem einnig heitir Túnis. Maðurinn stakk lögregluþjónana með hnífi en hvorugur þeirra lét lífið. Annar særðist einungis lítillega en hinn var stunginn í hálsinn og var fluttur á sjúkrahús og er nú á gjörgæslu. Maðurinn mun hafa verið kunnur yfirvöldum, samkvæmt frétt Reuters, og sagði hann eftir árásina að lögregluþjónar væru „harðstjórar“.Lögregluþjónarnir stóðu vörð nærri Bardo safninu, sem er andspænis þinghúsinu. Árið 2015 voru 21 ferðamaður myrtir í hryðjuverkaárás á safnið. Sama ár var einnig gerð árás á strandhótel í borginni. Túnis hefur átt í erfiðleikum varðandi öfgamenn frá því að einræðisherranum Zine El Abidine Ban Ali var velt úr sessi árið 2011 og lýðræði var komið á laggirnar í landinu. Uppreisnin var upphaf Arabíska vorsins svokallaða.
Túnis Mest lesið Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Erlent Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Innlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent Átökin ná nýjum hæðum Erlent Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Erlent Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Innlent Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Innlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Þjófar réðust á starfsmann verslunar Innlent Fleiri fréttir Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Sjá meira