Á Kylie Jenner von á stelpu? Ritstjórn skrifar 14. nóvember 2017 20:00 Er þetta staðfesting á Kylie Jenner er ólétt? Glamour/Getty
Sögusagnir hafa verið uppi lengi um að Kylie Jenner eigi von á sínu fyrsta barni með unnusta sínum Travis Scott en ekkert hefur ennþá verið staðfest í þeim efnum. Nýjustu myndir gefa hinsvegar sterklega til kynna að þessi 20 ára raunveruleikastjarna og snyrtivörumógull eigi von á sínu fyrsta barni. Slúðurmiðlar hafa um dágóða hríð velt vöngum yfir því hvort Jenner, sem er ein sú frægasta í Kardashian fjölskyldunni og yngst, eigi von á barni en Kardashian fjölskyldan hefur verið þögul sem gröfin. Kim Kardashian á hinsvegar von á sínu þriðja Það birtist hinsvegar mynd á slúðursíðum af heimili Jenner þar sem haldið er fram að þar hafi farið fram svokölluð barnasturta (e. babyshower) um helgina. Heimilið var skreytt í bleikum lit sem gefur til kynna að lítil stelpa sé á leiðinni. Daginn áður hafði stóra systir hennar Kim Kardashian sem á einnig von á barni, haldið sína eigin barnasturtu með pompi og pragt svo það var greinilega nóg að gera í veisluhöldum hjá þessari frægu fjölskyldu. SkjáskotSkötuhjúin Travis Scott og Kylie Jenner.Glamour/Getty
Mest lesið Frábærar hugmyndir að konudagsgjöfum Glamour Meira glimmer, minna twitter Glamour Kim komin í smellubuxur Glamour Dauðlangar að leika í Star Wars Glamour Vilja líka banna "microbeads“ í Bretlandi Glamour Katy Perry með sérstakt hárskraut Glamour Leonardo DiCaprio og Orlando Bloom fóru saman á Coachella Glamour Ljósmyndastúdíói breytt í íbúð í 101 Glamour "Það stóð nú aldrei til að hafa þjóðina á brjósti“ Glamour Christy Turlington Burns á forsíðu Glamour Glamour