Volvo David Bowie seldist á 23 milljónir Finnur Thorlacius skrifar 4. janúar 2018 13:59 Volvo 262C Bertone bíll David Bowie.
Þessi 1981 árgerð af Volvo 262C Bertone seldist á uppboði í Sviss rétt fyrir áramótin á 216.000 dollara, eða tæplega 23 milljónir króna. Það er harla hátt verð fyrir Volvo bíl frá 1981, en hafa verður í huga að hann var í eigu David Bowie, er fremur sjaldgæfur bíll og fagur og þessu eintaki hefur aðeins verið ekið 53.000 km. David Bowie keypti bílinn nýjan árið 1981 og var hann fluttur til heimilis Davis Bowie í Sviss, en ekki er vitað hve lengi hann var í eigu poppgoðsins. Flestar poppstjörnur þessa tíma og reyndar enn velja sér helst bíla frá Rolls Royce, Bentley eða Mercedes Benz. David Bowie hafði greinilega annan og hófsamari stíl, þó svo ekki verði sagt annað en þessi Volvo bíll sé glæsilega útlitandi með sína ljóslitu leðurinnréttingu. Volvo 262C Bertone bíllinn er með 2,8 lítra V6 vél sem skilar 155 hestöflum til afturhjólanna og þessa gerð mátti bæði fá með þriggja gíra sjálfskiptingu eða fjögurra gíra beinskiptingu. Það var ítalska hönnunarhúsið Bertone sem sá um að útfæra innréttingu Volvo 262C Bertone.Með ljósa leðurinnréttingu.Býsna snotur bíllinn hans David Bowie.
Mest lesið Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent