Lokað um Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Öxnadalsheiði Birgir Olgeirsson skrifar 9. febrúar 2018 12:43 Frá kafaldsbyl á Holtavörðuheiði. STEINGRÍMUR ÞÓRÐARSON
Vegirnir um Holtavörðuheiði og Bröttubrekku eru lokaðir en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni verður skoðað hvort tilefni sé til að opna þá klukkan 13. Vegurinn um Öxnadalsheiði er einnig lokaður en þar verður sömuleiðis athugað klukkan 13 hvort tilefni sé til að opna hann. Hjáleið er um Dalvík og Siglufjarðarveg. Samkvæmt veðurspá er búist við því að það muni hvessa í nótt og með hríðarveðri og takmörkuðu skyggni frá Eyjafjöllum og austur á Austfirði. Á Suðurlandi og í Borgarfirði, snjófjúk og blint undir morgun. Við birtingu vaxandi vindur, skafrenningur og snjór eða él í flestum landshlutum. Hálka er á Reykjanesbraut, Grindavíkurvegi og á höfuðborgarsvæðinu. Hálka og skafrenningur er á Sandskeiði, Hellisheiði og Mosfellsheiði en snjóþekja í Þrengslum. Ófært er á Kjósarskarði. Það er víðast hvar þæfingur eða snjóþekja á Suðurlandi og éljagangur og sums staðar einhver skafrenningur. Á Vesturlandi er þæfingur, hálka, snjóþekja og éljagangur. Á Vestfjörðum er hálka, snjóþekja og skafrenningur. Þæfingur er í Ísafjarðardjúpi. Á Norðurlandi vestra er hálka og snjóþekja, skafrenningur mjög víða. Hvasst er við Stafá á Siglufjarðarvegi. Á Norðaustur- og Austurlandi eru hálkublettir en greiðfært á þó nokkrum stöðum. Hálka er á Fjarðarheiði. Hálka og hálkublettir eru með suðausturströndinni.
Samgöngur Veður Mest lesið Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Erlent Starfsmaður verslunar sleginn Innlent „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Innlent Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar Innlent „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Erlent Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Innlent Fleiri fréttir Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Þjófar réðust á starfsmann verslunar Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Gagnaþjófnaður til rannsóknar á þremur stöðum Íbúasamtök vilja láta endurskoða rafrænt eftirlit Bílastæðasjóðs Sjá meira