Allt eða ekkert var þemað hans í línunni, þar sem ádeila á kauphegðun var svolítið í brennidepli. Fyrirsætur gengu niður tískupallana með marga skræpótta plastpoka, og Ashish lék sér með lógó kreditkorta og breytti textanum. Visa varð að Viva, American Express að American Excess og Mastercard að Masturbate.
Hann hélt í sín einkenni, eins og pallíettur og mikið skraut. Megnið af flíkunum var allt í pallíettum eins og svo oft hjá Ashish. Margar flíkurnar hafa lifað vel á samfélagsmiðlum eftir sýninguna, og þá sérstaklega Masturbate hettupeysan. Eitthvað verður hún vinsæl í haust!







