Enn liggur ekkert fyrir um myndun meirihluta í Kópavogi. Dregið gæti til tíðinda fljótlega en líklegt þykir að Sjálfstæðisflokkurinn myndi meirihluta með Framsóknarflokknum. Sjálfstæðismenn hafa fundað um málið í dag og halda áfram að funda á morgun.
Ágreiningur Sjálfstæðismanna um myndun meirihluta í Kópavogi er sagður snúast um afstöðu þeirra Margrétar Friðriksdóttur, Karenar Elísabetar Halldórsdóttur og Guðmundar Gísla Geirdal, sem vilji ekki starfa áfram með Theódóru Þorsteinsdóttur, oddvita BF Viðreisnar.
Theódóra telur afstöðu bæjarfulltrúanna þriggja snúast um sína persónu, frekar en pólitískan ágreining. Í ljósi stöðunnar sé því ólíklegt að meirihlutasamstarfið haldi áfram.
„Ég held að það sé nokkuð ljóst. Við erum auðvitað ekki að fara að þvinga í gegn einhverja óánægju sjálfstæðismanna í þessu samstarfi áfram. Ég er alla veganna ekkert mjög bjartsýn á það,“ segir Theódóra. Aðeins einn annar kostur virðist vera í stöðunni úr því sem orðið er að sögn Theódóru. „Ég held það sé þá frekar vænlegra að þau fari í samstarf með Framsóknarflokknum ef það gengur betur, milli persóna þarna inni.“
Yrði það þá eins manns meirihluti en aðspurð segir Theódóra að líklega slíkur meirihluti yrði veikur. „Miðað við svona það sem ég hef heyrt manna á milli og í fjölmiðlum varðandi deilurnar innan Sjálfstæðisflokksins þá held ég það já,“ segir Theódóra.
Erfiðlega hefur gengið að ná í bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í dag. Í skriflegu svari til fréttastofu rétt fyrir kvöldfréttir segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri að sjálfstæðismenn hafi fundað vegna málsins í dag og þeir muni halda áfram að funda á morgun.

