Um er að ræða innfluttar bandarískar og ástralskar töflur eftir því sem fréttastofa kemst næst. Mikið magn hafi nýlega komið frá Ástralíu. Þá eru einhver dæmi um falsaðar Xanax töflur sem eru pressaðar af óprúttnum aðilum og geta innihaldið allskyns hættuleg efni.

Töflurnar ganga kaupum og sölum á netinu, eru ílangar og innihalda tveggja milligramma skammt. Hver tafla kosta um 2 þúsund krónur í lausasölu á svörtum markaði en verðið lækkar hratt þegar keypt er í magni og dæmi eru um 50% magnafslátt.
Efnið er gríðarlega sterkt og ein 2mg tafla getur rotað óvana, sérstaklega ef áfengi er haft um hönd á sama tíma. Þá getur neyslan framkallað ruglástand og langvarandi minnisleysi.

Ástæða þess að lyfið kemur við sögu í svo mörgum dauðsföllum er að það hægir mjög á öndun og getur auðveldlega valdið öndunarstoppi og dauða, sérstaklega ef þess er neytt með áfengi eða öðrum vímugjöfum.
Auk Xanax virðist stóraukið framboð á Oxycontin töflum á svörtum markaði hér á landi undanfarið.
Það er sterkt morfínskylt lyf og hefur verið kallað „sveitalubba-heróín“ í Bandaríkjunum, enda áhrifin nánast þau sömu og af heróíní.
Oxycontin töflurnar hafa lengi gengið kaupum og sölum hér á landi og var talað um að fíklar keyptu þær oft af krabbameinssjúklingum. Framboðið nú er hins vegar svo mikið að hægt er að útiloka að stór hluti af því komi frá íslenskum apótekum.
Þá hefur verið mikið um Oxycontin töflur í umferð sem merktar eru með spænskum texta á umbúðunum og því væntanlega fluttar inn frá Spáni eða rómönsku Ameríku.
