Eiginkonan lést og prinsinn slasaðist Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. júní 2018 05:36 Norodom Ranariddh og Ouk Phalla voru á leið á fund með stuðningsmönnum. Vísir/Getty
Kambódískur prins slasaðist og eiginkona hans lést þegar leigubíll ók í veg fyrir bifreið þeirra hjóna. Prinsinn, Norodom Ranariddh, og eiginkona hans, Ouk Phalla, voru flutt á sjúkrahús í suðvesturhluta landsins. Phalla lést af sárum sínum nokkrum klukkustundum síðar. Þau höfðu verið á leið á fjöldafund með stuðningsmönnum prinsins, sem jafnframt gegndi eitt sinn stöðu forsætisráðherra Kambódíu, þegar slysið varð. Hálfbróðir prinsins fer nú fyrir stjórnmálaflokki sem hefur sett sig upp á móti þingkosningunum, sem fram fara í Kambódíu í júlí. Kambódísk stjórnmál hafa verið róstusöm á undanförnum árum. Stærsti stjórnarandstöðuflokkur landsins var til að mynda leystur upp í fyrra og formaður hans kærður fyrir landráð. Forsætisráðherra Kambódíu, Hun Sen, hefur í raun stýrt landinu eftir eigin höfði síðastliðin 33 ár. Hann hefur sætt gagnrýni fyrir að nýta sér dómstóla og öryggissveitir landsins til að hefna sín á pólitískum andstæðingum sínum. Hinn fyrrnefndi Ranariddh og Sen voru báðir forsætisráðherrar á árunum 1993 til 1997. Þá leiddi Sen uppreisn gegn þeim fyrrnefnda og sparkaði honum úr embætti. Prinsinn steig svo aftur inn á stjórnmálasviðið árið 2015, eftir að hafa náð sáttum við forsætisráðherrann Sen.
Kambódía Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira