„Ég er 100% viss um að Nígería sigri Ísland,“ sagði Pascal þegar blaðamaður hitti á hann á stuðningsmannasvæðinu í Volgograd í kvöld. Sömu sögu var að segja af öðrum nígerískum stuðningsmönnum. Þeir eru kokhraustir fyrir leikinn.
Pascal býr í Kanada en er grjótharður stuðningsmaður þeirra grænklæddu, The Super Eagles, eins og nígeríska liðið er kallað. Ofurernirnir myndi það líklega heita á okkar ylhýra.
„Ég er mikill aðdáandi og fylgdi liðinu líka til Brasilíu fyrir fjórum árum,“ segir Pascal. Þá kom upp ósætti hjá Nígeríumönnum vegna peningagreiðslna frá knattpsyrnusambandinu og gekk illa hjá liðinu.

„Við erum ekki sömu mistökin og á móti Króatíu,“ segir Pascal.
Simeon Tochukwu Nwankwo, framherji Crotone í ítölsku b-deildinni, og Kelechi Iheanacho, framherji Leicester, þurfi að byrja gegn Íslandi. Vantað hafi upp á sóknarleikinn gegn Króatíu.
„Ég horfði á leikinn hjá Íslandi og liðið er mjög vel skipulagt í varnarleiknum. Nígería þarf að brjóta þá niður,“ segir Pascal. Til þess þarf að planta fyrrnefndum framherjum í byrjunarliðið.

„Nígera er með bakið upp við vegg. Sigur eða farðu heim,“ segir Pascal.
Detti Nígería út og Ísland kemst áfram er hann ekki líklegur til að hoppa á Íslandsvagninn.
„Þá hoppa ég á Ronaldo vagninn,“ segir Pascal og lýsir þeim portúgalska, gæðum hans og einbeitingu, í þaula.
„Ef Ronaldo væri franskur, spænskur eða þýskur þá yrði sú þjóð heimsmeistari.“
Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á Facebook, Twitter og Instagram.