Minnihlutinn í borgarstjórn harmar það sem hann kallar „algjört aðgerðarleysi,“ í málefnum heimilislausra í Reykjavík. Í tilkynningu frá minnihlutanum segir að hann hafi fundað í gær um það „neyðarástand“ sem nú ríki í málaflokknum.
„Við þessar aðstæður er það fullkomið ábyrgðarleysi að borgarstjórn og fagráð borgarinnar séu nú komin í sumarleyfi án þess að leysa vandann,“ segir í tilkynningunni.
Þar er þess jafnframt getið að minnihlutinn hafi óskað eftir aukafundi í velferðarráði í sumar svo að setja mætti þessi mál á dagskrá „í heild sinni“ eins og það er orðað.
„Svörin voru á þann veg að ekki var unnt að verða við ósk um aukafund fyrr en 10. ágúst nk., á meðan eykst neyð heimilislausra með hverjum deginum.“
Greint hefur verið frá því í fjölmiðlum að undanförnu að umboðsmaður Alþingis hafi sagt að almennur og viðvarandi vandi væri til staðar hjá Reykjavíkurborg í tengslum við húsnæðismál utangarðsfólks. Hið sama ætti við um hóp einstaklinga með fjölþættan vanda að því er fram kom í niðurstöðu frumkvæðisathugunar umboðsmanns. Fjölgað hefur í hópi utangarðsfólks í höfuðborginni um 95 prósent frá árinu 2012.
Minnihlutinn segir í tilkynningu sinni að hann hafi sammælst um að grípa þurfi „strax til neyðarúrræða, hefjast handa við að leysa þennan alvarlega vanda til frambúðar“ og hefur hann farið fram á aukafund í borgarráði í næstu viku.
„Heimilislaust fólk fær ekki sumarfrí frá áhyggjum sínum og þeirri angist sem fylgir því að hafa ekki þak yfir höfuðið.“

