Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 á dögunum en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti.
Uppskriftirnar verða ávallt aðgengilegar hér á Vísi. Hér að neðan má sjá uppskriftir úr þætti kvöldsins.

Focaccia með hvítlauk og rósmarín
Deig:
600 g hveiti
1 msk hunang
½ tsk. Salt
12 g þurrger (1 bréf)
1 dl ólífuolía
Ofan á:
1 dl ólífuolía
2 hvítlauksrif
1 msk smátt saxað rósmarín
10 kirsuberjatómatar
Aðferð: Blandið volgu vatni, þurrgeri og hunangi saman í skál. Hrærið vel í blöndunni og látið standa í nokkrar mínútur eða þar til það byrjar að freyða í skálinni.
Blandið öllum hráefnum saman í hrærivélaskál og hnoðið deigið vel eða þar til deigið er slétt og sprungulaust. Þá er deigið látið hefast undir viskastykki þar til það hefur tvöfaldast að stærð eða í um það bil 35 – 40 mínútur. Því næst er ofnskúffa smurð með ólífuolíu, deigið sett í skúffuna og því þrýst jafnt út í alla kanta.
Saxið hvítlauk, rósmarín og blandið við ólífuolíu. Smyrjið deigið vel með hvítlauksolíunni, sáldrið sjávarsalti yfir og stingið nokkrum kirsuberjatómötum í deigið. Bakið brauðið við 200 °C í 15-20 mínútur eða þar til brauðið er orðið gullinbrúnt.

Himnesk súkkulaðimús - Fyrir fjóra
30 g smjör
220 g súkkulaði
260 ml rjómi
3 stk egg
2 msk sykur
Sjávarsalt á hnífsoddi
Fersk hindber
Aðferð:
Bræðið smjör og súkkulaði við vægan hita í potti. Hellið súkkulaðiblöndunni í skál og blandið þremur eggjarauðum saman við. Kælið blönduna.
Þeytið rjóma og bætið að því loknu súkkulaðiblöndunni saman við í þremur hlutum. Leggið blönduna. Stífþeytið eggjahvíturnar og bætið sykrinum smátt og smátt saman við.
Hrærið eggjahvítublönduna mjög varlega saman við súkkulaðiblönduna með sleikju, hrærið vanillu út í að lokum. Skiptið súkkulaðimúsinni niður í falleg glös eða skálar og geymið í kælií lágmark 3 klukkustundir áður en þið berið hana fram.

Risotto með kóngasveppum
- 1 msk ólífuolía + klípa smjör
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 4 dl arborio hrísgrjón
- 250 g smátt skorinn aspas
- 80 g kóngasveppir
- 10 flúðasveppir
- 8 dl kjúklingasoð
- 2 dl hvítvín
- Salt og pipar
- 60-80 g parmesan ostur
-
2 msk smjör
Aðferð:
- Leggið þurrkaða kóngasveppi í bleyti samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
- Hitið ólífuolíu í potti, steikið lauk og hvítlauk í 2-3 mínútur. Bætið smátt söxuðum aspas og smátt söxuðum sveppum út í pottinn og steikið, bætið því næst arborio grjónum út í og hrærið stöðugt.
- Hellið hvítvíninu saman við og leyfið því að sjóða niður, bætið næst kjúklingasoðinu smám saman við og hrærið mjög vel á milli.
- Bætið parmesan ostinum og smjörinu saman við í lokin og kryddið til með salti og pipar.