Trausti Már Falkvard dyravörður kom í gær fram í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis þar sem hann ræddi um þá auknu hörku sem hann segir að sé að færast í skemmtanalíf miðbæjarins og þann skort á viðbragðsúrræðum sem dyraverðir hafa úr að velja þegar eitthvað kemur upp á.
Umræðan um öryggi dyravarða miðbæjarins kemur í kjölfarið á fólskulegri árás sem gerð var á dyravörð skemmtistaðarins Shooters við Austurstræti seint í síðasta mánuði. Þar hafði umræddur dyravörður vísað þremur gestum staðarins á dyr. Mennirnir sneru síðan til baka og gengu í skrokk á dyraverðinum svo hann hlaut alvarlega áverka af, meðal annars mænuskaða. Maðurinn liggur ennþá á spítala.
Samkvæmt Trausta er maðurinn jákvæður og bjartsýnn á framhaldið. Þá segir hann manninn ekki vera byrjaðan í endurhæfingu en kveðst ekki geta tjáð sig um ástand hans að öðru leyti.
Hafa tekið tekið höndum saman og vilja víkka starfssvæði sitt
Margir dyraverðir voru slegnir eftir árásina og upp spratt hávær umræða um öryggi dyravarða og leiðir sem hægt væri að fara til þess að auðvelda þeim að taka á ofbeldi sem þeir verða ýmist vitni að eða lenda sjálfir í starfs síns vegna. „Síðan þetta gerðist hafa margir dyraverðir bæjarins tekið saman höndum og við höfum verið að bæta okkar öryggi með því að bæta við dyravörðum á vaktir þannig að menn séu ekki að standa einir í dyrunum.“
Þá hafa dyraverðir bæjarins fundað með hinum ýmsu aðilum í kjölfar umræðunnar. Þeim var boðið á fund forseta Íslands auk þess sem þeir hafa fundað með mannréttindastjóra Reykjavíkur. Þá er fyrirhugaður fundur dyravarða við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.
Aðspurður hvað það sé sem dyraverðir sækist eftir segir hann það helst vera meira frelsi í starfi sínu. Til að mynda kveði núverandi regluverk á um að dyraverðir fari ekki lengra en einn og hálfan metra frá staðnum sem þeir starfa á. Séu þeir lengra frá staðnum eru þeir ekki tryggðir af vinnuveitendum fyrir hvers kyns skaða sem þeir gætu orðið fyrir í starfi.
„Við sem dyraverðir horfum oft upp á slagsmál hinu megin við götuna [...] og við hlaupum náttúrlega allir inn í það og stoppum svoleiðis. En um leið og við gerum það þá erum við orðnir ótryggðir og í raun bara almennir borgarar.“
Trausti segir þetta klárlega vera eitthvað sem dyraverðir vilji breyta og þeir telji að miðbærinn verði öruggari fyrir vikið.
Vilja fá að nota handjárn
Aðspurður hvaða tól dyraverðir hefðu til ráðstöfunar við störf sín sagði Trausti að í raun mættu dyraverðir ekki nota neitt meira en hinn almenni borgari. Þetta sé eitthvað sem dyraverðir vilji þó breyta.
Þá vill Trausti horfa til Norðurlandanna, sérstaklega Svíþjóðar, þar sem dyraverðir handtaki þá sem ekki fari að fyrirmælum dyravarða og hafi í raun sömu valdheimildir og lögregla.
Þá segir Trausti að dyraverðir lendi oft í því að því sé illa tekið þegar þeir neyðist til þess að taka fólk tökum og halda því niðri og þeim sé hreinlega oft mætt með ofbeldi þegar í slíkar aðstæður er komið.
Trausti telur að þetta megi leysa með því að heimila dyravörðum notkun handjárna eða bensla sem eigi að gera þeim auðveldara fyrir að halda niðri því fólki sem taka hefur þurft niður.
„Við viljum sjá einhverjar breytingar og fá aukið öryggi fyrir okkur þar sem þetta starf er náttúrulega gífurlega hættulegt. Ef maður fylgist með fréttum þá sést að það er alltaf meira og meira af alvarlegu ofbeldi í Reykjavík.“
Viðtalið í heild sinni má heyra hér að neðan.