Loftslagsbreytingar auka á hungrið í heiminum Heimsljós kynnir 11. september 2018 09:00 FAO/IFAD/WFP Patterik Wiggerr
Að mati Sameinuðu þjóðanna sveltur 821 milljón jarðarbúa og 150 milljónir barna eru með vaxtarhömlun vegna vannæringar. Varað er við því að annað Heimsmarkmiðið, að útrýma hungri og vannæringu, sé í hættu. Loftslagsbreytingar eru ein helsta skýringin á auknum matarskorti í heiminum. Í nýrri stöðuskýrslu um fæðuöryggi og næringu í heiminum – The State of Food Security and Nutrition in the World 2018 – sem kom út í morgun kemur fram að hungrið í heiminum heldur áfram að aukast. Á síðasta ári hafi 821 milljón manna búið við sult, eða einn af hverjum níu jarðarbúum. Skýrsluhöfundar segja lítið gert til þess að bregðast við ýmsum birtingarmyndum vannæringar, allt frá vaxtarhömlun barna til offitu fullorðinna, sem ógni heilsu hundruð milljóna manna. Í fjölmörg ár dró sífellt úr hungri í heiminum en á síðustu þremur árum hefur það aftur færst í aukana. Þessi öfugþróun felur í sér skýr aðvörunarmerki um að brýnna aðgerða sé þörf ef ætlunin sé að ná öðru Heimsmarkmiðinu um að útrýma hungri fyrir árið 2030. Ástandið hefur versnað í Suður-Ameríku og víðast hvar í Afríku. Hins vegar hefur dregið markvert úr langvarandi vannæringu sem einkenndi Asíuríki um áratugaskeið. Í skýrslunni eru skýringar á auknum matarskorti sagðar bæði að finna í loftslagsbreytingum, flóðum, þurrkum og ofsaveðri, en einnig í átökum og efnahagslægðum. Fimm stofnanir koma að gerð skýrslunnar, Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ (FAO), Alþjóðasjóður um þróun landbúnaðar (IFAD), Matvælaáætlun SÞ (WFP), Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO).Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim.Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Segjast hafa uppgötvað nýjan lit sem ekki hefur sést áður Erlent Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Innlent Engin tengsl milli þolenda og gerenda Innlent Mótmæla brottvísun Oscars Innlent „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Innlent Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Innlent Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Innlent Saka hvor aðra um að berjast áfram þrátt fyrir vopnahlé Erlent Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Innlent Koma strandaglópunum heim í kvöld Innlent